8. september
![]()
Þið verðið að afsaka hvað er langt síðan síðan hans Ástþórs Arnar var uppfærð! Settum inn nokkrar sveitamyndir á myndasíðuna um daginn en eitthvað hefur lítið gerst hér. Reynum að bæta þetta. Allt fínt að frétta af okkur. Nóg að gera hjá öllum, Sigurður Ágúst flesta dagana á Hellisheiðinni, ég í skólanum og Ástþór Örn á Álfaheiði. Þessa dagana er Ástþór Örn að æfa sig í að hætta með bleiju. Það gengur nú bara nokkuð vel. Hann er bleijulaus hér heima og núna síðustu daga hefur hann verið það líka á leikskólanum...nema þegar hann fer út að leika eða leggja sig. Í næstu viku er svo stefnt að því að hann fari af Sunnu yfir á Brekku. Tveir vinir Ástþórs Arnar sem eru fæddir seinni hluta árs 2002 eru að fara upp um deild og fannst þeim Ástþór Örn alveg tilbúinn að fylgja þeim. Þeir fóru í heimsókn á Brekku í morgun, fengu að leika svolítið með krökkunum þar og fara út að leika. Ástþóri Erni fannst þetta allt alveg frábært...en þeim elsta, Sigurði fannst þetta alveg hræðilegt og spurði marg oft hvort að Ástþór Örn og Kolbeinn færu ekki örugglega með þegar hann myndi færa sig yfir!!!
Í gær fékk svo Ástþór Örn langþráðan draum uppfylltan: Skoða Hallgrímskirkju! Hann hefur í langan tíma verið mjög upptekinn af Hallgrímskirkju en ég ekki lagt í meira en að skoða hana með honum að utan. Var eitthvað hrædd um að vera með hann hlaupandi þar inni! En þeir feðgar fóru og skoðuðu hana í gær og fannst Ástþóri Erni þetta mikilfengleg upplifun. Þegar ég kom heim seinni partinn sagði hann mér það að stóra kirkjan, Sallgrímskirkja hefði sko ekkert verið lokuð, heldur opin (ég skammaðist mín svolítið fyrir að hafa sagt honum stundum að hún væri lokuð :o/ )
og þar hefði hann séð stóran Jesú (stytta Einars Jónssonar) og píanó! Ástþór Örn hafði verið voða prúður og við stefnum að því að fara við tækifæri í messu þegar Guðrún Lára er að syngja, nú eða bara gabba hana, Maríu og Huga í barnamessu. Það hefur lengi staðið til.
Um helgina stefnum við að því að fara í sveitina, því það á að reka af fjalli. Ástþór Örn orðinn spenntur þar sem afi hans er búinn að segja honum að þeir muni velja fallega kind sem hann megi eiga.
Við mæðgin búin að vera hér að leika okkur í dag.
Og tilvalið að setjast og fá sér smá kaffi saman. Ástþóri Erni finnst svakalega gaman að
setjast og spjalla smá yfir köku...hvaðan ætli hann hafi það nú!?!?
Höfðum það voða notalegt.
Spiladósin var svo dregin fram. Ástþór Örn er alltaf jafn hugfanginn af "stelpunni"!
Alltaf að koma auga á eitthvað nýtt...í dag var gerð sú merka uppgötvun að stelpan væri með nef og blóm í hárinu!
