15. ágúst
Þá erum við komin heim úr vel heppnaðri norðurferð. Þeir feðgar flugu til Akureyrar á fimmtudagsmorgun og ég keyrði svo á föstudaginn.
Frekar leiðinlegt veður en við létum það ekkert á okkur fá. Skruppum í Mývatnssveitina á laugardaginn og áttum þar mjög skemmtilegan dag.
Eitthvað vorum við ódugleg að mynda en hér eru samt nokkrar!
Tekin í síðustu viku. Ástþór Örn hefur verið ansi duglegur að mála og teikna undan farið. Fátt skemmtilegra!
Við leiruðum saman lítinn grís
Ástþór Örn að kenna litla grísnum að brosa!!!
Á leið í Mývatnssveitina. Stoppuðum aðeins við Goðafoss
Og komin á Hverarönd. Hér standa þeir feðgar á pallinum góða...sem við Sigurður Ágúst smíðuðum 1998!!
Fjölskyldumynd
Þeir feðgar eitthvað að grína
Böðvar í Baldursheimi sýndi Ástþóri Erni fullt af dráttarvélum
Og hér var Ástþór Örn "kominn af stað" á leið í Stykkishólm
Við fórum svo í fótbolta...Doppa tók virkan þátt í leiknum
Í Baldursheimi var leikið í sandkassa, rólað, farið í fótbolta og svo má ekki gleyma því
að Ástþór Örn heilsaði upp á kýrnar, kálfana, heimalning og kanínur!
Úr Baldursheimi fórum við svo í grill í Garð þar sem Ástþór Örn skemmti sér konunglega og við hin borðuðum á okkur gat!
Var nú ekkert allt of sáttur þegar heim var komið í gær! En baðferð lyfti nú aðeins lundinni.