31. júlí
Nú er aldeilis farið að styttast stumarfríið. Ástþór Örn fer á leikskólann á þriðjudag, en má þó ekki heyra of mikið á það minnst. Þeir feðgar eru að bræða það með sér hvort þeir eigi að skreppa norður, en eiga eftir að skoða flug og hvort þeir fari kannski í næstu viku frekar. Sjálf er ég að fara að vinna fyrir skólann...nóg að gera.
Um helgina skruppum við í Dal. Ég var að hjálpa mömmu og þeir feðgar skemmtu sér vel með afa, Viktori, Gauta og að ógleymdum Pílu, Trýnu og Brá. Ástþór Örn stendur á því fastar en fótunum að hann eigi alla þessa hunda með húð og hári.
Áður en farið var í sveitina kom Ólíver frændi til okkar í heimsókn. Ástþór Örn að lesa fyrir litla frænda.
Ástþór Örn vildi svo endilega taka mynd af okkur frændsystkinunum!
Þeir frændur eru efnilegir hljómsveitardrengir...
Og eftir tónleikana vildi Ástþór Örn að klappað yrði vel fyrir þeim frændum!
Því næst sótti Ástþór Örn harmonikkuna sína og spilaði fyrir okkur Ólíver
Og kominn í sveitina. Þeir feðgar hjálpuðu afa við að smíða brú yfir læk sem rennur rétt við húsið.
Ástþór Örn skemmti sér konunglega en var á þessum tímapunkti orðinn svolítið þreyttur og lagðist hjá Pílu og Trýnu!
Þau eru ansi góðir vinir þessi þrjú!
Ástþór Örn og þær Píla og Trýna orðin þreytt á myndatökum!!
Þegar komið var heim úr Dal þótti lag að sveitastrákurinn skryppi í bað
![]()