26. júlí
![]()
Við Ástþór Örn heima í dag að slappa af og taka til. Sigurður Ágúst farinn aftur í vinnu. Leikskólinn opnar svo aftur á þriðjudaginn...ég veit ekki alveg hvað herramaðurinn mun hafa um það að segja. Hann vill bara vera í sveitinni, enda búinn að eiga þar ansi skemmtilegan tíma í sumar. Við Sigurður Ágúst skruppum til London og var Ástþór Örn í Dal á meðan. Honum leiddist ekki að fá að fara með afa sínum niður að á, leika við þá stóru frændur sína Gauta og Viktor, fara í heita pottinn og fleira!
Áttum rólegheitardag hér heima í síðustu viku. Þeir feðgar í múmínkaffiboði!
Ástþór Örn nývaknaður!
Í góða veðrinu í síðustu viku skruppum við austur fyrir fjall og kíktum á Didda og fjölskyldu við Álftavatn.
Þeir feðgar fóru út á bát með Didda. Vatnið er mjög grunnt og svolítið fyndið að sjá strákana vaða fram hjá bátnum.
Mér var svo boðið í smá bátsferð líka
Diddi á kajak
Ástþór Örn skemmti sér konunglega í fjörunni
Útbjuggu smá vaðlaug, sem Ástþór Örn var þó ekki alveg á að prófa í fyrstu!
Þurfti smá aðlögun!
En fljótlega var þessi pollur orðinn aðalfjörið
Ákvað svo aðeins að prófa að vaða í vatninu sjálfu
Og hoppað ofan í pollinn með tilþrifum!
Ástþór Örn var mjög upptekinn af þessari sprungu í klettunum...sagði reyndar að þetta væri hellir
Notalegt að sitja í volgum sandinum.
Bústaðurinn í byggingu. Mun fara vel um þau þarna í framtíðinni.
Ástþóri Erni fannst ansi gaman að fylgjast með þeim frændum sínum vaða í vatninu
Vildi endilega fá að taka til hendinni!
Og kominn vestur að fylgjast með pabba veiða.
Buslað aðeins í polli á meðan við fylgdumst með Sigurði veiða. Það má víst fylgja með að við hjónin veiddum bara ekki neitt!!
