18. júlí

 

 

 

Komum úr Dal í gærkvöldi. Búin að hafa það ansi fínt þar. En stöldrum stutt við í borginni því á miðvikudaginn ætlar Ástþór Örn að fá að skreppa í Dal aftur og hafa það gott með ömmu Kötu, afa Ástþóri og stóru frændum sínum Gauta og Viktori. Ástþóri Erni finnst ekki leiðinlegt í sveitinni þessa dagana, sérstaklega fylgjast með veiðinni en hann vill helst taka á móti veiðimönnunum og fá að líta á aflann. Stendur þar og segir "ég heiti Ástþór Örn"!!! Við foreldrarnir ætlum að skreppa til London í nokkra daga á meðan stúfurinn hefur það gott í sveitinni.

 

 

 

 

Ástþóri Erni fannst voða gaman að komast í allt dótið sitt í gær og þurfti að sjálfsögðu að lesa svolítið fyrir bangsa

sem höfðu verið vanræktir í heilar tvær vikur.

 

 

Í morgun drifum við okkur í Grasagarðinn. Ástþór Örn fékk að taka hjólið með.

 

 

 

 

Ástþóri Erni fannst nú mesti óþarfi að passa upp á það að hann stykki ekki út í vatnið!

 

 

En fann þó einhverjar bunur og kom sér í smá sull!!

 

 

Kaffihúsið í garðinum

 

 

Sigurður Ágúst var að koma í fyrsta skiptið á staðinn og leið bara eins og í útlöndum. Við Ástþór Örn

vorum aðeins vanari!!

 

 

Fengum okkur ís og kaffi

 

 

 

Hjólið aðeins hvílt á herðunum á Sigurði Ágúst.

 

 

 

"1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9...og hlaupa"