28. júní
Þá erum við mæðgin komin úr sveitinni. Áttum þar góða daga þrátt fyrir heljarinnar rigningu! Hjálpuðum til við gróðursetningu, fórum í Stykkishólm og fleira. Næstu helgi hverfum við svo aftur úr borginni og munum þá verða fram í miðjan júlí í Dal. Já sumarfríið að byrja!
Ansi kátur með að vera mættur í Dal...eða Gal eins og hann segir sjálfur.
Ástþór Örn og Píla hafa það notalegt
Og farið að rigna. Ástþór Örn í sandkassanum og Píla að sniglast þarna með!
Hjálpuðum afa Ástþóri við að setja niður plöntur
Ástþóri Erni fannst skemmtilegast þegar þurfti að fara á traktornum að sækja fleiri græðlinga!
Ótrúlega gaman að drullumalla!!
Orðinn svolítið skítugur...
...og það var bara skemmtilegra!
Steinsofnaði á leiðinni til Reykjavíkur. Áður en hann sofnaði var muldrað "ekki fara í Kópavog...ekki fara í Kópavog"!!!!
Þýddi ekkert annað en að fara í bað þegar í Kópavoginn var svo komið.
Og hér er ein í lokin síðan þeir feðgar voru í Dal á meðan ég var í Helsinki!
Ástþóri Erni fannst frekar gaman að busla í kerinu!!!!