Júní
![]()
Loksins nýjar myndir og smá fréttir! Búið að vera nóg að gera í júní hjá okkur. Ég og Ástþór Örn vorum fyrir vestan nokkra daga í byrjun júní. Nú svo fór Sigurður Ágúst til Rúmeníu og svo ég til Finnlands! Þeir feðgar voru í Dal á 17. júní og um helgina, það var víst voða gaman. Fóru að veiða, í heita pottinn og alls konar. Í gær skruppum við svo í Dal til að halda upp á fimmtugsafmæli pabba, voða gaman. Nú fer svo að líða að sumarfríi á Álfaheiðinni. Við Ástþór Örn ætlum að vera tvær vikur fyrir vestan og Sigurður Ágúst vonandi eitthvað þar líka með okkur. Svo er stefnan að fara aðeins norður og líka slappa svolítið af hér heima.
Alltaf jafn gaman að fá að "keyra" traktorinn. Hér er loksins mynd af Ástþóri Erni í fallegu lopapeysunni sem
Bergþóra prjónaði handa honum.
Á leiðinni að gefa hestunum smá brauð
Þeir fengu svolítið...Píla rændi nokkrum bitum og afganginn borðaði Ástþór Örn!!!
Malarhaugur sem Ástþór Örn kallar fjallið. Finnst rosa gaman að leika sér í "fjallinu"!!
6. júní opnaði afi Ástþór sýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi. Ástþór Örn fór í jakkafötin í tilefni dagsins.
Hér er hann að spjalla við Haffa og Sigurð Ágúst.
Tómas og Ástþór Örn skemmtu sér ansi vel fyrir utan Norska húsið
Og þegar komið var heim í Dal voru þeir félagar að "keyra" hvorn annan út og suður!!
Skipst á að bjóða í hjólatúr
Að fara og heilsa upp á hestana
Rosa gaman að keyra hratt í hjólbörunum
Trýna og Ástþór Örn leggja í leiðangur. Ferðinni heitið að heilsa upp á kindurnar.
Þeir nafnar fyrir utan Norska húsið
Davíð frændi og amma Svana voru með í Stykkishólmi. Ástþór Örn fékk afa sinn og frænda í steinakast.
Og svo fengum við okkur hressingu í Sjávarpakkhúsinu við höfnina.
Frakkur ansi spenntur fyrir traktornum. Ástþór Örn sat á þessum steini á meðan ég kembi hestinum hans.
21. júní fórum við í Dal þar sem við héldum upp á afmæli afa Ástþórs. Fullt af gestum voru í afmælinu og mjög gaman.
Ólíver og Ástþór Örn gerðu veitingunum góð skil.
Með afa á afmælisdaginn
Veiðitímabilið í Straumfjarðará hófst í gær. Ástþór Örn var mjög spenntur fyrir því að fá að skoða fyrstu laxa sumarsins.
Og spenningurinn var ekki minni þegar kom að því að fylgjast með slættinum!