22. apríl
![]()
Gleðilegt sumar! Vonum að það fari að láta finna svolítið fyrir sér. Við áttum ansi fínan fyrsta sumardag. Fórum í boð í Langagerðið þar sem var borðað mikið af góðum mat, hlegið og spjallað. Ástþóri Erni fannst ansi gaman að hitta Ólíver, Martein og Gauta. Er stundum svolítið harðhentur við litla frænda sinn og þegar hann ætlar svo að vera góður fer það nú stundum öðruvísi en áætlað var þar sem Ólíver finnst faðmlögin heldur hranaleg og kossarnir í ætt við árás. Í dag er svo frí á Álfaheiði og við mæðgin því búin að vera hér heima að skottast. Ég fer svo í skólann á eftir og þeir feðgar verða að skemmta sér á meðan. Hafið það öll gott um helgina!
Ástþóri Erni fannst þetta rosa sniðugt uppátæki, að setjast á tússlitaboxið og bað um að
tekin yrði mynd!!!
Var ekki lengi að rífa pappírinn utan af sumargjöfinni
Sem var lítið hús sem sló alveg í gegn :o)
Við foreldrarnir voru dregnir inn í "heisó" (heimsókn) til skiptis!!
Margrétta "brunch" í Langagerðinu
Í Langagerðinu. Ólíver fannst gúrkurnar bestar
Gauti að lesa fyirr þá litlu stráka!
Marteinn, Gauti, Ólíver og Ástþór Örn
Nafnar á spjalli
Ástþór Örn nældi sér í tómat í desert
Boðið í kvöldkaffi þegar við komum heim úr Langagerðinu
Ástþór Örn ætlaði svo líka að sofa í húsinu!
Við vorum á svölunum í morgun að blása sápukúlur með þessum fínu sápukúlugræjum sem
Ástþór Örn fékk í sumargjöf frá Ólíver frænda