15. apríl
![]()
Allt gott að frétta af okkur, svona fyrir utan kvef sem herjar á heimilismeðlimi. Við höfum þó sem betur fer ekki lagst enn. Hlökkum til að fá svolítið sumar :o) Í gær átti Sigurður Ágúst afmæli og við Ástþór Örn lögðum okkar að mörkum svo dagurinn yrði sem skemmtilegastur...tókst vel!
Í gær fórum við Ástþór Örn líka í göngutúr í Heiðmörkinni með afa Ástþóri, Pílu og Trýnu.
Góða helgi!
Að borða ís á svölunum í góða veðrinu!
Sólin var eitthvað að stríða augunum þannig að Ástþór Örn vildi fá sólgleraugu
Að teikna afmæliskort handa pabba
Afi Ástþór kom aðeins í heimsókn til okkar. Mjög vinsælt að draga fram myndaalbúmin...
greinilega verið að skoða eitthvað spennandi!!
Og svo var farið í "fram fram fylking..."!
Í gærmorgun var haldið morgunkaffiboð fyrir afmælisbarnið, sem að sjálfsögðu fékk líka pakka!
Ástþór Örn hjálpar hér pabba sínum að opna þá!
Og hér er afmælisbarnið kominn í nýju fötin sem hann fékk frá okkur mæðginum í afmælisgjöf.
Og ein fjölskyldumynd...afmælisbarnið uppljómað af gleði!!!!!
Ástþór Örn var ekkert á því að þetta morgunkaffi væri búið og nú væri tími til að fara að hafa sig til
á leikskólann. Hann kom því bara með eldhúsáhöldin sín og lagði á borðið!
Í göngutúr í Heiðmörk
Mjög fallegt veður og sáum við á Snæfellsnesið "okkar"!!
Og til Reykjavíkur!
Ástþór Örn að tína gras...var mikið að leita að hestum í göngutúrnum.
Við Píla að hinkra eftir göngufélögum okkar...
Sem fóru aðeins hægar en við!!
Til að við kæmumst aðeins hraðar yfir fékk Ástþór Örn að fara á háhest!
Sæl eftir gönguna
Komin heim og hér aðstoðar Ástþór Örn við panna-cotta gerð
Markaðstækni Hagkaupa að hitta í mark...
Að gefa hestinum morgunmat! Hesturinn sem upprunalega hét Stjarni heitir
nú ýmist Frakkur eða Skuggi!
Frekar nývaknaðir! Ástþór Örn fór ansi fínn á leikskólann enda
danstími á dagskrá og um að gera að vera herramannslegur!
![]()