10. apríl
![]()
Helgarfrí enn og aftur, sem er hið besta mál! Í gær vorum við mæðgin í rólegheitum heima fram eftir degi. Ástþór Örn átti hér stórleiki...nokkra ansi góða og aðra svona ekki alveg eins góða!! Hér var að sjálfsögðu kveikt á sjónvarpinu á meðan þessu brúðkaupi stóð þó við værum nú ansi óspennt fyrir því að þessu sinni. Ástþór Örn söng þó með þegar hann heyrði einhverja tónlist spilaða. Í upphafi messunnar þegar mikill kórsöngur var í gangi stóð hann og "söng" með. Ég spurði hvað væri verið að syngja og hann svaraði því örugglega "Álfaheiði"...sem er lag af leikskólanum!!!
Seinni partinn þegar Sigurður Ágúst var kominn heim úr vinnu komu amma Kata og Viktor frændi í vöfflukaffi. Ástþór Örn þurfti náttúrlega að sýna þessum stóra frænda sínum alls kyns kúnstir. Amma Kata bauð okkur svo öllur á Hornið og var það voða gaman.
Í morgun vorum við vöknum snemma, eða um hálf átta en leyfðum nú Sigurði að lúra aðeins lengur. Fengum okkur hafragraut og lékum okkur. Sigurðru var svo dreginn út í sandkassa rétt eftir að hann vaknaði. Þeir feðgar voru varla komnir í sandkassann þegar fór að hellirigna. Við fórum því í bíltúr og enduðum í smá morgunkaffi í bænum, ansi notalegt!
Afi leit hér á okkur um daginn og fékk Ástþór Örn hann til að lesa bók!
Og afi má nú ekki koma í heimsókn án þess að lita svolítið líka.
Búið að teikna Pílu og Trýnu (eða Ílu og Ýnu eins og Ástþór Örn kallar þær), fiska, ömmu og margt fleira
Smá grín áður en farið er í náttfötin
Og einbeittur með þessi heyrnartól sem Ástþór Örn fékk í kaupbæti þegar við fórum og keyptum
ljós í holið!
Ólíver og Ástþór Örn
Mjög gaman að sitja og spila og syngja
Í kærkvöldi var haldið matarboð hjá Ástþóri Erni...rétt fyrir svefninn.
Þar var boðið upp á fisk, kartöflur og súpu...já og köku með sósu í eftirrétt.
Í morgun að kúra með bangsa og Tinnu
Og við þennan glugga situr Ástþór Örn ansi oft og kíkir á fuglana
Búinn að elda graut handa Tinnu, Maisy og bangsa í morgun
Og þeir feðgar í sandkassanum í rigningunni!