3. apríl

 

 

Við búin að eiga ansi notalega helgi. Á föstudaginn var danskennsla á Álfaheiðinni og Ástþór Örn skemmti sér víst ansi vel.

Við skruppum svo mæðginin aðeins í Blómaval...sem er ansi vinsælt út af páfagaukunum sem eru þar.

Í gær kom svo Anja langamma og var hjá Ástþóri Erni á meðan við skruppum í vel heppnaða fermingarveislu til Hildar Valdísar.

Þau skemmtu sér svo ansi vel hér heima á meðan amma Anja og Ástþór Örn að við foreldrarnir hefðum bara átt að skreppa í bíó eða eitthvað líka!!

Í dag erum við svo búinn að vera úti í snjónum og haft það gott hér heima. Ágætt að safna kröftum fyrir komandi viku! Já og knús og kossar til Bjarteyjar frænku í eyjunum sem er að fermast í dag á þessum góða degi. Afi Ástþór og amma Kata eru okkar fulltrúar þar.

 

 

 

 

 

Á föstudagskvöldið komu afi og amma á Akureyri í heimsókn. Það var rosa gaman.

Ástþór Örn hafði í nægu að snúast að sýna þeim ansi margt, enda nokkuð síðan þau voru hjá

okkur síðast.

 

 

Að máta finnsku loðhúfuna hans Sigurðar Ágústs.

 

 

Að lita í gærmorgun

 

 

Þessir litlu fuglar eru hér enn aðal málið!

 

 

 

Sungið hástöfum!

 

 

 

 

 

Í morgun fórum við í skemmtilegan leiðangur. Heilsuðum fyrst upp á Pílu og Trýnu

í Langagerðinu og fórum svo í Laugardalinn.

 

 

Þar var barist um brauðið!

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar við komum heim úr Laugardalnum bjuggum við til snjókarl hér fyrir

utan húsið.

 

 

 

Ansi notalegt að fá sér súkkulaðiköku og kakó eftir útiveruna :o)

Ástþór Örn stóð fast á því að við værum að halda afmæli!

 

 

 

 

 

Brjálað stuð hjá þeim feðgum!!