28. febrúar 

 

 

Ástþór Örn fór hress og kátur á leikskólann síðasta miðvikudag og virtist vera staðinn upp úr veikindunum. Fékk að vera inni þessa daga svona til að ekki væri nein hætta á því að honum myndi slá niður. Við fjölskyldan vorum því farin að hlakka til að halda afmæli í gær og hafa skemmtilega helgi. En á laugardagsmorguninn var litla skinnið komið með háan hita og ansi lasinn. Fékk tíma á vaktinni í Domus Medica seinna um daginn. Þeir feðgar fóru þangað og ég kom svo beint úr útskriftarathöfninni til þeirra. Læknirinn skoðaði hann vel og fékk tíma í lungnaröntgen á Landspítalanum. Ástþór Örn stóð sig ansi vel og var mjög samvinnuþýður. Kom í ljós að lungnabólga var að koma sér fyrir og því ansi gott að hægt var að grípa inn í strax. Fékk lyf og hefur braggast ansi hratt síðan og er nokkuð hress. Verður inni í einhverja daga. Við erum öll farin að hlakka ansi mikið til þess að geta farið að fara svolítið meira út og óskandi að þessari löngu inniveru fari senn að ljúka!

 

En hér eru nokkrar myndir!

 

 

Voða gaman að vera kominn með borð og stóla inn í herbergið.

 

 

Og um daginn var sett önnur hilla inn til Ástþórs Arnar. Það var að sjálfsögðu

mikið grín þegar var verið að setja hana saman!!

 

 

 

 

Að spila! Nýja hillan sem geymir bækur og púsl var skreytt með Mikka og félögum hans úr Andabæ!

 

 

Í síðustu viku beið þessi fína afmæliskóróna Ástþórs Arnar á leikskólanum.

 

 

 

Og búinn að skreyta stólinn...maður verður nú að finna sér eitthvað til dundurs þegar hangið er inni!!!

 

 

Í gær varð Ástþór Örn ansi glaður þegar Marteinn og Gauti litu inn hjá okkur. Þeir voru búnir að ákveða að bjóða frænda sínum

út að borða með ömmu Kötu eftir afmælisveisluna sem átti að halda og tóku ekki annað í mál en að fá þá alla vega að færa herramanninum

eitt barnabox heim! Ágætt að við höfðum bakað muffins um daginn sem varð að koma í stað afmælisköku!

 

 

Það nýjasta er að taka bækur úr bókahillunni og lesa aftan á þær...okkur foreldrunum þykir þetta

uppátæki að sjálfsögðu mjög sniðugt!

 

 

 

Að teikna fugl á töfluna í eldhúsinu

 

 

 

Það verður okkar fyrsta verk að fara og láta klippa Ástþór Örn þegar hann verður orðinn hress.

 

 

 

Horft á Bubbi byggir, sem  kemur mjög sterkur inn þessa dagana. Ágætis hvíld frá Múmínálfunum...og ósvífninni í Míu litlu!