20. febrúar
Takk fyrir kveðjurnar í Gestabókina! Við búin að eiga notalega helgi, svona þrátt fyrir veikindin.Ástþór Örn var alveg hitalaus í gær
og í dag en í kvöld var hann með 38°. Líklegast krækt sér í sömu pest og Sigurður, sem lá með hita í rúma viku. Ástþór Örn með svolítinn hósta en annars hress og verður bara að fá að ná þessu úr sér í rólegheitum. Við mæðgin verðum því heima og reynum að slappa af næstu daga. Við munum sjálfsagt hafa nóg að gera í sveitastörfunum! Í dag fengum við svo góða heimsókn, Davíð frænda sem er hér í vinnuferð frá Þýskalandi. Ástþór Örn var ansi kátur að sjá hann enda hafði ég reynt að útskýra fyrir honum að þetta væri bróðir afa. Bara það að hann tengdist afa var nóg til þess að hann fékk ansi höfðinglegar móttökur. Ekki spillti fyrir að Davíð var með pakka frá Daníel, Láru Dís og Lilju Rós. Á pakkanum var rosa flott kort sem Lára Dís hafði teiknað. Og myndþemað á því var sveitin...hvað annað! Enda hafði Lára víst útskýrt fyrir Davíð að hún hefði teiknað traktor (meðal annars) því litlir strákar hefðu svo gaman að svoleiðis! Aldeilis rétt hjá henni!! Í pakkanum var bók um bangsafjölskyldu sem er að kenna litla húnanum í fjölskyldunni að bursta tennur. Með bókinni fylgir tannbursti og tímaglas sem kemur sér vel fyrir lítinn mann sem vill stundum láta bursta á ansi miklum hlaupum.
Alsæll í gærkvöldi að leika með allt nýja dótið. Dýrum af öllum gerðum var safnað saman og lítil Legostelpa
var ráðin sem kaupakona í sveitina!!
Nóg að gera við að moka
Við Ástþór Örn vorum að flytja ýmislegt um "jörðina"!
Þessa tók afmælisbarnið...með mjög lítilli aðstoð.
Þessi var svo tekin...án nokkurrar aðstoðar!
Á leið í háttinn í gærkvöldi. Alveg hættur að nota duddu nema svona þegar farið er í rúmið.
Í morgun var svo drifið í að hleypa kúnum út og gefa þeim morgunmat
Ástþór Örn í fínu nýju fílasokkunum!
Á hverju kvöldi er lesið fyrir Ástþór Örn sem er nú farinn að vilja leggja bangsana sína
og sitja svo og lesa smá sögu!! Hann er mjög upptekin af því að "lúlla" og það má ekki
vera með mikinn hávaða þegar verið er að svæfa!