19. febrúar 

 

 

 

Ástþór Örn tveggja ára í dag! Ætlunin var að halda afmælisveislu en vegna veikinda var henni frestað og verður vonandi haldin næstu helgi.

Ástþór Örn er vonandi að hrista af sér þessa pest, er enn svolítið kvefaður en hitinn á niðurleið.

Byrjuðum daginn á morgunkaffi og kakói, ansi notalegt. Eftir hádegið litu svo afi Ástþór og amma Kata við ásamt Vigdísi og Ólíver. Vigdís og co að flytja næstu helgi og amma og afi verða í sveitinni þannig að þau heilsuðu upp á afmælisbarnið í dag.

 

 

Í morgun biðu nokkrir pakkar ásamt þessu litla folaldi!

 

 

Í pakkanum var hvorki meira né minna en geislaspilari sem settur verður (hátt!!)

upp í hillu hjá Ástþóri Erni sem er farinn að vilja hlusta á sína eigin geisladiska!

 

 

Og í öðrum pakka var þessi fína dráttarvél, sem féll í ansi góðan farveg.

 

 

Beðið eftir kræsingunum!

 

 

Ansi notalegt að byrja daginn á heitu kakói og croissant

 

 

 

 

Þennan flotta bóndabæ fékk Ástþór Örn frá afa og ömmu í Litluhlíð. Það þarf ekki að taka fram að gleðin var mjög mikil

hjá afmælisbarninu!

 

 

Lítill bóndi!!

 

 

Eftir hádegið komu amma Kata, afi Ástþór, Vigdís og Ólíver með enn fleiri pakka til mín.

 

 

 

Í öðrum pakkanum frá afa og ömmu voru þessi fínu föt sem Ástþór Örn fór í...enda enn á náttfötunum þegar gestirnir komu!

 

 

 

Að smakka á afmæliskökunni

 

 

Ólíver að skoða fína dótið sem hann gaf frænda

 

 

Ástþór Örn ansi ánægður með daginn :o)

 

 

Þessi verður að fá að fylgja!!