8. febrúar
Við mæðginin heima í dag. Ástþór Örn með hósta og kvef, en hitalaus sem betur fer. Ákváðum að leyfa honum nú bara að vera heima í rólegheitum
í dag og vonandi að hann komist á leikskólann á morgun, öskudag.
Við búin að vera að dunda okkur hérna við ýmislegt. Ástþór Örn leyft mér að lesa svolítið fyrir skólann en við erum búin að leika svolítið líka...þó að Ástþóri Erni finnist ég halda tempóinu aðeins of rólegu fyrir hans smekk stundum! Áðan bökuðum við okkur svo súkkulaðimuffins...sem er jú allra meina bót og þar af leiðandi gott við kvefi og líka skólastressi!
Þrátt fyrir smá morgunfúlheit og kvef er myndabrosið aldrei langt undan!!!
Lesið fyrir bangsana um lífið í sveitinni
Hér voru engar rjómabollur í gær þannig að við Ástþór Örn bökuðum í dag í tilefni sprengidags!!
Lítill súkkulaðigrís ;o)
Og slappað af yfir Múmínálfunum