5. febrúar

 

 

Þá erum við komin í helgarfrí. Ansi notalegt. Allt gott að frétta af okkur. Gengur vel á Álfaheiðinni og skemmtilegir dagar fram undan, bollu-, sprengi- og öskudagur. Annars er gaman að því hversu duglegir starfsmennirnir á leikskólanum eru að setja inn myndir af krökkunum. Ástþór Örn er búinn að taka miklu ástfóstri við Helgu, sem er yfir hans deild og var með honum í aðlöguninni. Hinar á deildinni sögðu að þau væru eiginlega orðin eins og gömul hjón!!! Ætli hann vilji ekki hafa hana út af fyrir sig, eins og hann vildi helst vera að knúsa Bergþóru allan daginn! En í fyrradag og í gær var Helga í fríi og Ástþór Örn varð því að kynnast svolítið hinum konunum á deildinni. Gekk víst vel og hann bara hress og kátur. Og þeim fannst þar fyrir utan skemmtilegt að kynnast honum því hann hafði víst stundum ekkert allt of mikið vilja spjalla við þær ef Helga var nálæg!

 

 

 

Ef Ástþór Örn fær að ráða dagskránni er beðið um að fara og skoða "bíbí". Við skelltum okkur því í

Laugardalinn í gær mæðginin. Ástþór Örn var heldur æstur til að byrja með þannig að fuglarnir vildu ekkert allt of mikið

koma og þiggja brauð!

 

 

En við komum þó út heilu brauði

 

 

 

 

 

Ástþór Örn ansi brattur...þar til ein þáði vettlinginn hans ásamt brauðbita.

Leist honum ekkert meira en svo á þegar hann horfði á eftir mér hlaupandi á eftir gæsinni...

sem skilaði vettlingnum á endanum!!!!!

 

 

 

 

Ekki ónýtt að rekast á traktor.

 

 

Og kominn heim að púsla. Ástþór Örn þóttist sjá þarna kunnugleg andlit eins og afa og "ínu" (sem er samheiti yfir

Pílu og Trýnu!), Viddí (Vigdís) var þarna líka og amma!

 

 

Ástþóri Erni fannst ómögulegt að hafa ekki afa líka með núna í teikningunni.

Ég var í það minnsta ekki að gera þetta rétt og því var reynt að kalla á afa.

 

 

 

Í gærkvöldi var Ástþór Örn svo með atriði af leikskólanum...við náðum ekki alveg

hvert lagið var en atriðið var skemmtilegt!!

 

 

 

 

 

Töffari að borða súrmjólk!