31. janúar
Af okkur er allt gott að frétta. Nóg að gera í leikskóla, skóla og vinnu! Ástþóri Erni líkar ansi vel á Álfaheiði og fer spenntur að hitta krakkana á hverjum morgni!
Mæðginin...og nýja stofuljósið!
Í gær fórum við niður að tjörninni í Laugardalnum. Ástþóri Erni finnst það alveg það skemmtilegasta.
Hefur mjög mikinn áhuga á fuglum...þeir verða því góðir saman hann og Gauti frændi!
Sá ekki ástæðu til að gefa fuglunum allt brauðið og nartaði í svolítið sjálfur
Ótrúlega sniðugur! Eins og sést á fingraförum í glugganum er þetta mjög vinsæll staður. Þarna má fylgjast með
krökkum úti að leika nú eða athuga hvort að einhverjir fuglar láti sjá sig.
Að mæla hestinn. Nýtt áhugamál að mæla alla hluti.
Búinn að elda eitthvað gott. Það sem er vinsælast á seðlinum þessa vikuna hjá kokknum
er "sóssa" og "köku"!
Í smá útreiðartúr
Einbeittur að teikna
Heppinn að afi Ástþór datt inn í kaffi og hægt var að virkja hann í smá teikningu!
Einbeittir nafnar!
Paddington knúsaður
Myndabrosið!!!
Kominn svefngalsi í lítinn mann...kominn tími til að fara í rúmið og hlusta á sögu!