27. desember

Við búin að hafa það ansi gott í jólafríinu. En líka búin að fara út í göngu, skreppa í heimsóknir og fleira. Á morgun er ætlunin að fara á
jólaball, sem verður örugglega mjög gaman :o)
Að horfa á múmín...hvað annað! Í fínu Bangsímonnáttfötunum frá afa og ömmu á Akureyri
Og verið að elda eitthvað gott
Í dag komu Vigdís og Ólíver í heimsókn.
Gaman á háhesti!
Ólíver farinn að standa upp og ganga með, ansi duglegur!
Fyrir þá sem ekki vissu þá eru kindabakpokar það heitasta í dag!!!!
Ástþór Örn fæst svo varla úr nýju peysunni sem hann fékk frá systkinum ömmu Hillu í jólagjöf!
Jólahúsið sem afi Örn er í miklu uppáhaldi. Ástþór Örn sýnir manni "hesús" oft á dag!!!