15. desember
Ástþór Örn búinn að vera heima síðustu tvo daga. Vaknaði með hita aðfararnótt mánudags og magapínu. Var heima mánudag og þriðjudag og áttu þeir feðgar ansi góða daga saman. Var hitalaus í morgun og fékk að vera hjá afa og ömmu þar sem hann var enn pínu tuskulegur! En nú er Bergþóra dagmamma orðin lasin, þannig að hann fer til ömmu og afa aftur á morgun. Vonandi að Bergþóru batni fljótt. Okkur finnst voða skrítið að Ástþór Örn sé að hætta í næstu viku. Haustið búið að vera svo fljótt að líða, hann oft lasinn og því finnst manni hann bara vera rétt að komast inn í allt þar. Hann á áreiðanlega eftir að sakna allra þar. En Ólíver fær plássið hans, sem var voða gaman. Kannski að við fáum að sækja litla frænda stundum svona til að heilsa upp á Bergþóru!
Við pabbi að setja ljós á svalirnar
Rosa stuð!!
Spenntur yfir Múmínálfunum. Kalla hér stundum "Mía" og "Ninna". Þar sem oft er horft á þessa spólu
er bara búist við að hægt sé að kalla á sögupersónurnar og þær mæti!!
Fór fram með teninginn og sat þar í fýlu!!
Lasarus heima að hringja í afa!
Þessi sólgleraugu eru aðalmálið þessa dagana
Og verið að elda. Draumajólagjöfin er sjálfsagt eldavél!!!