11. desember
Allt fínt að frétta af okkur. Nóg að gera í vinnu og við próflestur hjá fullorðna fólkinu og Ástþór Örn hjá dagmömmunni. Í gær fór Ástþór Örn á jólaball. Nokkrar dagmömmur sem héldu saman jólaball og var það rosa notalegt. Ástþór Örn skemmti sér vel og hefur viljað vera með jólasveinahúfuna sem Bergþóra gaf honum síðan hann kom af ballinu! Eftir hádegi fór hann svo með afa og ömmu í bæinn, niður að Tjörn, þar sem gæs náði að ræna af honum snuddu og svo í heimsókn til Hröbbu frænku. Í kvöld verður svo skórinn settur út í glugga í fyrsta skiptið, verður gaman að sjá hvort eitthvað verður kveikt á því!!! Ég er eiginlega farin að hugsa hvort að það verði kannski erfitt að "afskóa" drenginn þegar allir jólasveinarnir hafa komið til byggða!!!
Í dag var loksins keypt efni í gardínur í herbergi Ástþórs Arnar...enda nokkuð langur tími liðinn frá því við fluttum :o/
Búinn að skreyta hestinn
Að knúsa bangsa
Í Langagerðinu.
Rosa töffarajólasveinn!!
Tók ekki annað í mál en að fara með sólgleraugun út í vagn