1. desember
Ástþór Örn enn heima lasinn. Verður sjálfsagt inni á morgun líka. Langamma Anja var hjá honum í gær á meðan ég fór í skólann og Sigurður í vinnu. Gekk það ansi vel og Ástþór Örn hinn prúðasti. Í dag voru þeir feðgar svo saman á meðan ég skrapp í skólann. Þeim veitti ekkert af því að eiga smá tíma saman, þar sem þeir hafa lítið sést þar sem Sigurður er búinn að vera mikið í vinnu. En við mæðgin gerðum margt skemmtilegt eftir hádegið. Lásum, horfðum á hina stórskemmtilegu Múmín, spiluðum slönguspil og kveiktum svo á dagatalskertinu og fengum okkur kakó!
Í kakóboðinu!
Það kom ekki á óvart að Ástþór Örn skemmti sér konunglega í þessu litla boði okkar!
...drengurinn fagnaði 1. desember innilega!!!
Búið að skipta um bol og þrífa mesta kakóið burtu! Ástþór Örn er nokkuð þolinmóður að spila en vill þó fá að kasta teningnum
fyrir alla þátttakendur!