29. nóvember
Við mæðgin vorum heima í rólegheitum í dag. Ástþór Örn með hitavellu í gær, hósta og líklegast hálsbólgu þannig að hann var heima í rólegheitum. Við settum upp fyrstu seríuna, horfðum á múmín og tókum svolítið til.
Vígalegur á hestbaki með ofnhanskann!!
Að gefa hundunum og kisunni að drekka
Og búinn að uppgötva dyrasímann. Við erum örugglega orðin eins og fjölskyldur í raunveruleikaþætti stundum...
Ástþór Örn búinn að standa fyrir beinni útsendingu og skemmtiatriðum!!!!
Feðgar að fá sér brauðsneið í gær. Ástþór Örn var slappur í gær og þeir feðgar misstu því af
dýrindis kökum í afmælisveislu hjá Helenu.

Myndasvipurinn!
Ansi gaman að lita, andinn hellist þá yfir litla manninn sem á erfitt með að halda litunum inni á blaðinu!
Amma Kata gaf voða fínt eldhúsdót, þannig að nú eru oft ansi fínir réttir á boðstólnum hjá Ástþóri Erni
Nýja grafan á leið á pönnuna
Alveg uppgefinn í dag eftir alla eldamennskuna
Ástþór Örn hafði miklar skoðanir á því hvar ætti að hengja seríuna.
Reyndar var hann á því um tíma að þetta færi betur sem trefill eða ætti að hengjast á rúmið hans!!
Við vorum sammála um þennan stað mæðginin.