25. nóvember
Voða langt síðan síðan mín var uppfærð. Það er bara búið að vera svo mikið að gera. Er búinn að vera heilmikið í heimsókn hjá ömmu Kötu og afa Ástþóri á meðan mamma hefur verið í skólanum lengur en venjulega. Ég er orðinn voða sáttur hjá dagmömmunni, leik mér og er ekkert að kvarta lengur. Verð hjá henni fram að jólum og byrja svo eftir áramót á leikskólanum.
Nýkominn úr baði! Í "bí-bí" inniskónum.
Að teikna á töfluna í eldhúsinu
Lítill jóli að horfa á múmínálfana! Afi var svo góður að færa mér jólasveinabúning í dag.
Stjarni fékk að prófa jólasveinahúfuna!
Óspar á kossana
Smá fíflagangur! Við mamma fundum þessa litlu sætu Julius könnu um daginn og vil ég
ekki drekka úr neinu öðru þessa dagana!!