14. nóvember
Allt fínt að frétta af mér. Er allur að hressast hjá dagmömmunni þó ég kvarti nú alltaf pínu þegar við keyrum upp að húsinu. En ég knúsa hana Bergþóru voða mikið og er bara mjög ánægður. Ég er svo kominn með pláss á leikskóla frá áramótum. Fer á Álfaheiði sem er hérna rétt hjá okkur.
Þessi gleraugu komu upp úr einum kassanum...ég vildi að sjálfsögðu máta
Í rosa stuði!!
Rosa stútur settur á munninn þegar beðið er um koss
Myndabrosið!