20. október
Fór til dagmömmunnar á mánudaginn eftir kvefpestina. Var nú svolítið lítill í mér! Á þriðjudaginn var ég öllu hressari en eftir ansi stuttan
tíma hringda Bergþóra í mömmu og sagði henni að ég væri kominn með hita. Mamma trúði því nú varla! Ég var nú bara hress og kátur hér heima
þann daginn, með nokkrar kommur. Mamma skoðaði upp í mig, hvort að augntennurnar í efri góm væru væru komnar í gegn en svo var ekki þá en seinna um kvöldið var sprungið fyrir annari. Mamma veðjar því á að í þetta skiptið hafi þetta verið augntennurnar að valda hitanum. Mamma og pabbi ákváðu nú samt að hafa mig heima í dag þó ég væri nú hitalaus í morgun. Afi Ástþór búinn að bjóðast til að vera hjá mér fyrir hádegið á meðan mamma færi á bókasafnið til að lesa. Við afi áttum mjög skemmtilegan morgun, lásum og að sjálfsögðu fékk ég hann til að horfa á Múmínálfana. Amma Kata kom svo og fékk sér hádegiskaffi með okkur afa og mömmu. Við mamma skruppum svo aðeins í heimsókn í
Langagerðið eftir lúrinn minn. Þar var ég bara að leika og hafa það gott. Ekkert bólað á hitanum, sem betur fer. Á morgun fer ég því til dagmömmunnar...vonum bara það besta...ha ha!!
Ég og mamma!
Ég á leiðinni út, í fína jakkanum sem ég fékk sendan frá vini mínum í Tyrklandi!
Svolítið þreyttur að horfa á múmín
Já best að láta bara fara vel um sig :o)
Og aðeins að fljúgast á við pabba
Í dag í Langagerðinu.
Kominn heim að kúra í mömmu og pabbarúmi