15. október
Jæja þá er ég nú allur að hressast. Svolítið kvefaður enn þá en allt á réttri leið. Var nú samt heima í dag.
Búinn að vera að "hjálpa" mömmu að taka til, leika og ekki má gleyma smá Múmínálfum og Prúðuleikurum.
Amma Kata og afi Ástþór eru svo að koma heim frá Tyrklandi í kvöld og amma Hilla og afi Örn að koma til Reykjavíkur á morgun!
Verður gaman að hitta þau öll.
Ég er svolítið mikið að vilja gramsa í kössum sem mamma og pabbi eiga eftir að taka upp úr.
Í morgun rakst ég á spiladós sem mamma á. Ég varð voða skotinn í stelpunni sem dansar þegar maður trekkir upp!!
Glápti á hana endalaust og trúði ekki að það væri ekki hægt að ná henni úr þessum kassa!
Hún fékk svo að sjálfsögðu stóran koss!!!
Í kaffitímanum. Má ekki skilja lambið út undan
Og smá knús :o)
Góða helgi !