11. október

 

Er orðinn lasinn. Já það er ekki tekið út með sældinni að byrja hjá dagmömmu! Erum líka búin að vera dugleg að hitta aðra krakka með dagmömmunni minni og kerfið mitt bara að venjast þessu öllu saman. En alla vega kom ég aðeins fyrr heim á fimmtudaginn með smá hita. Við mamma lágum bara og sváfum mest allan daginn (hún var með magakveisu) og á föstudag var ég nú bara hress hér heima. Mamma og pabbi héldu því bara að þetta væru tennur en ó nei á laugardaginn fór ég að fá kvef og er núna bara hundlasinn hér heima. Við mamma erum búin að vera að dunda okkur hér eitthvað í dag. Ég gef henni nú ekki mikið næði til að læra...vil heldur að hún sé að lesa fyrir mig eða leika!

 

 

Ein síðan fyrir helgi! Svo gaman að horfa út um gluggann, reyna að koma auga á fugla og alls konar

 

 

 

Ég að hjálpa kisu á bak! Og búið að klippa mig. Sigrún Erla kom í heimsókn um daginn og klippti mig og mömmu.

 

 

Alveg dáleiddur yfir Prúðuleikurunum

 

 

Loksins búið að koma fína snaganum mínum upp til að geyma bakpokann minn á

 

 

 

Aðeins að kúra í mömmu og pabbarúmi