28. september
Jæja þá er ég kominn úr sveitinni, þar sem ég skemmti mér konunglega. Búinn að hitta hestana, kindurnar og auðvitað Pílu og Trýnu. Ekki var svo leiðinlegt að hafa Gauta frænda með. Mamma segir að ég haldi að ég sé sjö ára en ekki rúmlega eins árs þegar ég er með honum! Hlæ að öllu sem hann segir og reyni að herma eftir honum flest sem hann gerir. Já en alla vega komum við í bæinn í dag og ég því búinn að sjá nýja herbergið mitt. Líst mjög vel á það og lék mér í því í dag...dótið var nú komið svolítið út fyrir herbergið og ég vildi líka fá að leika í þvottahúsinu!! Amma, Gauti og tante Steina komu í dag í heimsókn. Þegar amma og Gatui voru að fara tók ég bara kindabakpokann minn og svo í höndina á ömmu, vinkaði mömmu og var bara á leiðinni aftur í sveitina! Varð svolítið sár þegar ég sá á eftir þeim, en það jafnaði sig fljótt. Maður er nú einu sinni bara að læra á þetta allt hérna. Á morgun fer ég svo til dagmömmunnar, sem á nú vonandi eftir að ganga vel.
Þegar ég kom inn í dag dreif ég mig strax inn í nýja herbergið mitt að leika
Við mamma að bíða eftir gestunum. Hlustuðum á útvarpið og sungum og dilluðum okkur með!
Rosa stuð hjá mér
Þetta er það nýjasta...hlamma mér upp í sófa og andvarpa hátt "ahhh"
Pabbi að setja saman hillu í herbergið mitt
Ég hjálpaði náttúrlega heilmikið til!!
Mamma leyfði mér að prófa lappahúfu sem amma Kata fékk í Finnlandi þegar hún var lítil stelpa. Rosa flottur!
Vildi endilega kíkja á mig í spegli!