24. september
Alveg orðinn hress og kátur á leiðinni í sveitina. Á meðan ég verð að skemmta mér í sveitinni ætla mamma og pabbi að reyna að flytja um helgina og ég fer því líklegast bara heim í Kópavog þegar ég kem úr sveitinni eftir helgina. Mamma og pabbi eru spennt að sjá hvernig ég tek því að vera kominn í sér herbergi!
Fór í bað í morgun, til að fara hreinn og fínn í sveitina.
"hæj...afa"
tsss...langaði mjög að fá að sprauta út í loftið!
Voða fínn superman!
Kominn á bak...Píla lætur flest yfir sig ganga!
Gauti frændi ætlar að koma með í sveitina. Við að fá okkur að borða áður en við leggjum í hann.
Glaður að komast út að hlaupa eftir alla inniveruna