19. september
Er búinn að vera lasinn síðan á miðvikudaginn. Með hita og svolítið kvef. Hef nú mest bara verið að slappa af. Við mamma horft á sjónvarpið, lesið og ég lagt mig. Ég verð nú heima á morgun þar sem ég hef verið með svolítinn hita í dag en það er nú vonandi að ég þurfi ekki að vera inni allt of marga daga í viðbót.
Þó maður sé lasinn er nú engin ástæða til að vera fúll!!
Í feluleik
...hvar er Ástþór Örn?!?!?
Hann hlýtur að vilja snudduna mína!
Hann fær alla vega einn koss!!
Að pakka ofan í lambabakpokann minn sem amma Kata var svo góð að gefa mér.
Ég var farinn að hálf skammast mín hjá dagmömmunni fyrir bakpoka frá mömmu!!!!
Í gær bakaði mamma súkkulaðiköku og við héldum smá kaffiboð!
Voða notalegt!