14. september

 

Jæja, loksins fréttir af mér og myndir! Búið að vera nóg að gera. Ég hef verið í aðlögun hjá dagmömmu. Gengur bara vel. Fyrstu dagana var ég nú ekkert sérlega hress, vildi aðallega vera að kúra hjá Bergþóru dagmömmu en minna leika. En núna er ég bara orðinn nokkuð brattur. Er eitthvað smá fúll þegar mamma fer...svo hún fái örugglega smá samviskubit!! Er svo ansi fljótur að hrista það af mér og leik mér við krakkana. Í morgun breiddi ég meira að segja út faðminn á móti Bergþóru þegar við komum. Dagmamman sagði mömmu að ég væri voða mikið að reyna að hringja í afa þegar ég væri hjá henni, mamma sagði henni að ég mætti varla heyra síma hringja þá væri ég farinn að æpa "afa, afa, afa"!!! Ég er enn bara nokkra tíma í senn en bráðum fer ég að vera til tvö, ef vel gengur áfram. Mamma og pabbi eru svo á fullu að vinna í íbúðinni. Ég er að hugsa um að skreppa í sveitina um helgina og vonandi geta mamma og pabbi flutt á meðan ég læt fara vel um mig hjá ömmu og afa.

Seinni partinn kom Ólíver til okkar í nokkra tíma. Ég var voða góður við hann og finnst svo gaman að fá hann í heimsókn. Ég vil reyndar ólmur fá að halda á honum og finnst voða fúlt að mega það ekki. Rétti út faðminn og vil fá hann í fangið.

 

 

Nývaknaður eftir smá lúr

 

 

Við mamma úti að leika

 

 

 

Við frændur

 

 

Smá taktar!!

 

 

Voða góður að "lesa" fyrir litla frænda

 

 

Svo söng ég smá líka!

 

 

 

 

Ólíver að bíða eftir kvöldmatnum sínum