5. september

 

Búið að vera nóg að gera hjá okkur undan farið. Ég var nokkra daga í síðustu viku með afa, ömmu og langömmu í sveitinni. Það var rosa gaman.

Ég vil bara helst hvergi annars staðar vera en í sveitinni!! Á föstudainn fór ég svo í fyrsta skipti til dagmömmunnar, hennar Bergþóru. Mamma var

með mér allan tímann og vorum við að leika við hann Bjarka sem er tveimur mánuðum yngri en ég. Eftir um klukkutíma fannst mér nú alveg komið nóg og fór bara að dyrunum og sagði "æja...æja"...vildi bara fara heim! Um helgina vorum við svo voða mikið í Hlíðarhjallanum. Mamma og pabbi að mála og ganga svolítið frá en ég aðallega að hlaupa um allt, skemmti mér konunglega. Í morgun fórum við mamma svo aftur til dagmömmunnar og mamma kom inn með mér en fékk svo að skjótast aðeins í burtu í smá stund. Ég var nú ekkert sérstaklega hress með það. Þegar mamma kom aftur var ég í fanginu á Berþóru með ekkasog, maulandi matarkex. En þetta kemur allt, tekur bara smá tíma að venjast. Á morgun ætla ég kannski að fá að vera aðeins lengur einn þegar mamma skýst í skólann. Í dag ætlum við mamma svo að hitta Vigdísi og Ólíver, gera eitthvað skemmtilegt saman.

 

 

 

Mjög gaman að leika úti á svölum.

 

 

Og inni í fótbolta

 

 

Verið að taka upp úr kössum í eldhúsinu

 

 

 

 

 

Kominn í uppvaskið

 

 

Það kom margt skemmtilegt upp úr dönsku kössunum, til dæmis þessi fáni og Bangsimonskeið!

 

 

Að kíkja hvort kisa láti eitthvað sjá sig

 

 

Þarna sést inn í herbergi Ástþórs Arnar!

 

 

Og kominn heim í Langagerðið að gusa í baði!