28. ágúst
Fór í morgunkaffi til Ólívers frænda. Mjög gaman að hitta hann, enda allt of langt síðan við hittumst síðast. Hann hefur stækkað svo mikið og er meira að segja kominn með eina tönn! Nú eftir morgunkaffið keyrði amma Kata okkur mömmu í Kópavoginn þar sem pabbi var að vinna í íbúðinni. Ég dreif mig nú bara í vagninn og svaf á meðan mamma og pabbi unnu. Vonandi að herbergið mitt verði tilbúið sem fyrst!!
Ólíver frændi minn
Hefur stækkað rosa mikið!
Ég að sýna Ólíver dót
Ólíver og amma Kata
Ég ætlaði bara að sofa í allan dag þannig að mamma og pabbi urðu nú að ýta aðeins við mér!