24. ágúst

 

Loksins nýjar myndir! Við mamma erum búin að vera í sveitinni og því ekki sett inn myndir. Ég skemmti mér stórkostlega vel í sveitinni.

Var úti að leika nánast allan daginn og sofnaði oftast á kvöldin á nokkrum mínútum. Hafði rosa gaman að því að fá að fara í smá bíltúra með afa, leika í sandkassanum, leika við Pílu og Trýnu og svo voru í Dal þeir Charlie (13 ára) og Tom (11 ára) sem léku fullt við mig. Mér fannst ekki leiðinlegt að vera leika með þeim, hló þegar þeir hlógu og gerði allt eins og þeir!! Pabbi sótti okkur svo í gær og þegar við komum til Reykjavíkur litum við á íbúðina okkar og ég skoðaði herbergið mitt. Þetta á eftir að verða voða fínt. Ég fer svo til dagmömmu sem býr ekki svo langt frá, vonandi að það eigi eftir að ganga vel. Ætla nú samt að fara í nokkra daga með ömmu og afa í sveitina á meðan mamma og pabbi mála og standsetja íbúðina! Byrja svo í aðlögun þegar ég kem til baka!

 

 

Afi að færa inn í veiðibækurnar og ég að leika við Pílu og Trýnu

 

 

Rosa stór!!

 

 

Við afi í smá göngutúr.

 

 

Að hjálpa afa að ryksuga bílinn hans

 

 

 

Davíð, Inger, Daniel, Lára Dís og Lilja komu í heimsókn, hér er Daniel að gefa mér far upp brekkuna!!

 

 

Rosa gaman hjá mér :o)

 

 

Og hér er Lilja litla frænka mín

 

 

Ég bauð Láru í smá "bíltúr"...

 

 

En það var víst ekki vel séð að ég væri kominn undir stýri og varð ég ekki glaður þegar

mamma stoppaði stefnumótið!!

 

 

En við fengum íspinna og þá var allt í góðu!!

 

 

Lítill sveitastrákur

 

 

 

Alltaf gaman í sandkassanum

 

 

Kökukarl!

 

 

...passar nú ekki alveg að vera með duddu við þessi sólgleraugu!!

 

 

 

 

Kominn í sumarfötin

 

 

 

Að gefa hestunum brauð

 

 

 

Ég, afi, pabbi, mamma, Píla og Trýna skelltum okkur í berjamó.

 

 

 

Þreyttur eftir allt labbið í berjamó

 

 

Í veiðihúsinu hjá ömmu að fá mér skyr í hádegismat

 

 

 

 

Við Píla að kúra

 

 

Með epladjús og harðfisk...sem er uppáhaldið eftir sveitadvölina!!

 

 

 

Kominn út að leika við Pílu og Trýnu

 

 

 

En þær voru ekki eins spenntar fyrir pollunum og ég var!!