5. ágúst

 

Við mamma ákváðum í morgun að drífa okkur í smá heimsókn í sveitina til ömmu og afa. Lögðum af stað um níu og ég lagði mig nú bara í bílnum á leiðinni. Varð rosalega glaður þegar ég rumskaði og sá afa og Gauta frænda! Amma og afi urðu voðalega glöð að sjá mig, enda langt síðan við höfum hist. Ég hljóp um allt og skemmti mér konunglega. Mamma er búin að vera að vinna í ritgerðinni sinni undan farna daga og ekki búið að vera svo gott veður, þannig að ég hef mest verið inni að leika. Ég og amma gáfum hestunum brauð, ég, afi og Gauti fórum í smá bíltúr og svo fékk ég aðeins að setjast upp í traktorinn! Við mamma renndum svo bara aftur til Reykjavíkur um þrjú og tók ég nú bara smá lúr á leiðinni heim líka.

Á morgun ætlum við pabbi svo að vera saman því mamma verður á bókasafninu. Við munum sjálfsagt bralla eitthvað skemmtilegt saman kallarnir!!

 

 

 

Ég varð voða glaður að hitta þessar vinkonur mína!

 

 

Afi búinn að ná einum 24 punda!!!!

 

 

 

 

Þegar ég er í sveitinni vil ég BARA vera úti að leika

 

 

 

 

 

Við afi búnir að heilsa upp á hestana, á leiðinni í traktorinn

 

 

Að bíða eftir kvölmatnum

 

 

Um leið og botnfylli er komið af vatni í baðið vil ég komast ofan í og vera fljótur úr fötunum til að missa nú ekki af neinu!!!

 

 

 

 

 

Kominn ofan í!!

 

 

Dráttarvélin fékk smá þvott líka

 

 

Hreinn eftir baðið aðeins að fá að leika í afa- og ömmurúmi

 

 

Nú vantar bara hana ömmu til að kúra hjá

 

 

 

 

Notalegt að liggja aðeins og slappa af áður en farið er í náttfötin og upp í rúmið mitt