Fallegir dagar í Dal í lok nóvember

 

Áttum góða og langa helgi í Dal. Múlavirkjun vígð fimmtudaginn 24. nóvember og í framhaldi af því áttum við

nokkra daga í Dal, nutum veðurblíðunnar, undirbjuggum hrossin fyrir veturinn, borðuðum góðan mat og slöppuðum jú svolítið af líka!

 

Píla, Viktor, Arnaldur, Trýna og Ástþór Örn úti í góða veðrinu

Sóttum hestana sem enn voru í túninu við Dal, þeir teknir af járnum og færðir í vetrarhagann.

Svo fallegir hestarnir þegar þeir eru komnir í vetrarskrúðann.Og mér þykir heil eilífð síðan tók að vora síðast

og ég kembi af þeim leifunum af vetrarhamnum!

Léttir, Arnaldur og Trýna. 

 

 

Það var nú ekki mikill snjór í Dal en það var þó ágætt snjóþotufæri. Þeir Arnaldur og Ástþór Örn

að undirbúa sig...

...þutu niður brekkuna og fannst Ástþóri Erni ansi gaman.

Fékk því að fara aðra ferð með Viktori frænda

sem einnig gekk ljómandi vel

Og þá var komið að okkur mæðginum að fara eina ferð...

...sem endaði ekki alveg eins vel og hinar. Ástþór Örn rann af þotunni beint á andlitið og var ekki kátur með þetta.

Þurfti því hálfgerða áfallahjálp...í það minnsta gott knús!

Arnaldur og Viktor sýndu okkur svo alls kyns listir

og fannst Ástþóri Erni vissara að horfa bara á af Álfasteininum

 

 

Á laugardaginn var haldið upp á afmæli veðurathuganna í norska húsinu í Stykkishólmi.

Það var því ágætt að taka sér smá frí frá próflestri og kíkja í jólastemninguna þangað!

Þetta hafði ekkert okkar áður séð! Við getum hér vottað það að það er stundum logn á nesinu!

Á Vatnaleiðinni á leið úr Stykkishólmi

 

 

Alltaf jafn gaman að kíkja í fjárhúsin. Við höfum frá því í sumar verið að spyrja Ástþór Örn

út í það hvað kindin hans ætti að heita og fram að þessu höfum við fengið svarið "Kind" en

um helgina var hann harður á því að kindin hans væri kind en ætti að heita Mýsla!!

Ástþór Örn bar hey í hrútana og sagðist vera "vinnukall"

 

 

 

Ástþór Örn ansi spenntur að fá að fikta svolítið í tölvunni hjá Viktori

 

Fátt jafn gaman og að sitja og borða góðan mat...að sjálfsögðu Dalslamb!

Ástþór Örn að knúsast með Pílu

Var á leið í háttinn en áttaði sig á því að hann átti eftir að fá eftirmat!

Það var því ekki hægt að fara að sofa fyrr en búið var að fá súkkulaðiköku og jarðarber.

 

Og um það bil þegar kakan var að klárast hafði litli maðurinn fregnir af því að einhverjir

væru á leið í kerið. Var ansi kátur þegar það fékkst í gegn að fá að skreppa með í smá stund.

Mér sýnist Arnaldur og Viktor vera í hálfgerðu hitamóki...

 

  

Fínir myndasvipir!

 

 

Á sunnudag þegar ég fann að prófkvíði var að koma sér fyrir dreif ég mig út að labba. Veðrið yndislegt

og mig langaði lítið heim í Kópavog til að halda áfram próflestrinum.

 

 

 

 

Vona að íbúar í þessum fallega steini hafi skynjað eitthvað af þessum kvíða mínum og sendi mér góða strauma...

og geti ef til vill sent mér hugboð um prófspurningar!!

...en verður og fer sem fer! Næsta mánudag er prófið og eftir það ekki alveg eins stíf vinna fyrir skólann.

Við Ástþór Örn ætlum því að reyna að njóta aðventunnar eftir 5. desember...á meðan aumingja Sigurður Ágúst verður

meira eða minna á Heillisheiðinni.