Þjóðhátíðarhelgi í Dal
Við skruppum um helgina í Dal. Á 17. júní var mesta þoka í manna minnum og því ekki hægt að vera eins mikið
úti og við ætluðum okkur. Við gátum þó komið niður svolítið af plöntum í ausandi rigningu! Í dag gátum við verið svolítið úti, fórum
meðal annars á hestbak. Ástþór Örn er orðinn spenntur að komast í sumarfrí til að geta verið sem mest í sveitinni.
Hann spyr raunar reglulega hvort hann megi eiga heima í sveitinni. Núna er hann ansi upptekinn af öllu fuglalífinu og eru
þeir nafnar að fylgjast með hrossagaukshreiðri sem mikil spenna ríkir yfir! Ætlum að skjótast í afmæli pabba í vikunni og er
Ástþór Örn ansi spenntur að spila afmælissönginn á gítarinn og athuga hvort ungar séu komnir í hreiðrið.
Orðið sumarlegt í Dal...við vorum ekki alveg viss um tíma á 17. júní hvort að það væri bara að koma haust!!
Elfa með litlu merina sem fæddist á meðan við vorum í Tyrklandi. Sú litla hefur ekki fengið nafn.
Ástþór Örn tók alveg óumbeðinn að sér að halda uppi fjörinu í Dal. Með nýja gítarinn sem amma Kata
gaf honum.
Nafnarnir að lita girnilega ísrétti :o)
Og Sigurður Ágúst leysir Soduko
Sigurður Ágúst og Ástþór Örn teyma Skugga, Létti og Frakk úr öllu grasinu yfir í gerðið.
Allt gert klárt fyrir reiðtúrinn
Ástþór Örn var teymdur einn hring á Krumma. Hann fór svo inn og slappaði af hjá ömmu Kötu á meðan
við fórum í reiðtúr. Og einmitt í reiðtúrnum varð myndavélin batteríislaus og því ekki hægt að skjalfesta ferðina,
sem var ansi vel heppnuð.
Heilsað upp á hestana í gerðinu eftir reiðtúrinn
Við gátum komið svolitlu niður af plöntum þessa helgina. Hér er brot af því sem sett var niður fyrir ári,
sem hefur braggast vel.
Glaður í sveitinni að hoppa í pollum!
Píla slappar af...
en fékk þó ekki lengi að vera í friði!
Félagarnir Píla og Ástþór Örn úti að leika í dag. Aumingja Trýna lenti fyrir bíl á fimmtudaginn og vonum við
að hún sé nú á batavegi eftir ansi erfiða daga.
Og ein dásemdar sumarmynd í lokin!