Sumardagar í sveitinni

![]()
Skruppum í Dal um helgina og áttum þar ansi góða daga í góða veðrinu. Eins og venjulega tók ég nokkrar myndir!


Sigurður og Ástþór Örn spila krokket í góða veðrinu

Ástþór Örn plantar tré með aðstoð ömmu Kötu

Ástþór Örn ansi ánægður með litla
víðtréð!

Fífur og fíflar


Ástþór Örn myndi helst vilja vera svona hálfan daginn í traktornum og svo að snudda í hrossunum hinn helminginn af deginum!

Smá fílflagangur...

Jú og svo á milli myndi hann skreppa í kerið og busla svolítið



Ástþór Örn var ekki frá því en að vöðvarnir hefðu bara stækkað svolítið í sveitinni

Ástþóri Erni þykir líka voða gaman að keyra traktorinn sinn þó hann kvarti nú stundum yfir því hvað er erfitt að keyra í mölinni!

Skuggi og Hrafn í sólinni

Og Frakkur og Léttir

Ég hef gert hlé á hestaferðum í bili en reyni í staðinn að vera dugleg að kemba þeim og spjalla svolítið við þá (er nú reyndar yfirleitt í sveitafötunum!)

Og hér er hann Neisti sem er eins vetra og nýkominn í Dal en hann er undan meri sem afi Ástþór á fyrir norðan og honum Mætti sem reyndar er
í girðingu þarna svolítið fyrir neðan Dal


Þeir nafnar settust aðeins hjá honum Neista og leyfði hann þeim aðeins að klappa sér. Í dag teymdi afi hann svo niður
á flatir til hinna trippanna.

Máttur glæsilegur. Við í Dal vonumst svo eftir öðru folaldi undan Mætti og nú Elfu næsta sumar


Má ekki dæla inn hestamyndum svona úr því við vorum í sveitinni! Hér er hún Hnota sem ég fékk í fyrra. Það er gaman að fylgjast með
henni og aðallega litnum. Kapall faðir hennar fæddist skjóttur en varð grár á fyrsta árinu en hún hefur haldið svolitlum lit sem ég er mjög ánægð með
enda þykir mér hún óskaplega falleg!


Hún er voða prúð og það er líka gaman að hún er ansi forvitin og kemur alltaf og kíkir svolítið á mann þegar heilsað er upp á hana í haganum

Og svo er hún rosa húmoristi líka!

Og úr haganum! Hér stilla Píla og Ástþór Örn sér upp.

Árið 2004 ákváðum við pabbi að nota Ástþór Örn og birkiplöntu sem mælistiku hvort á annað! Hér má sjá myndir frá 2004, 2006 og 2007 - fann ekki myndina frá 2005!

Við skruppum í bíltúr um nesið og vorum stopp í smá stund þar sem stór og mikill hópur var að fara ríðandi fjörurnar.
Við Sigurður öfunduðum þau nú enda frábært að fara í slíka ferð í svona góðu veðri

En ég var ekki alveg viss þegar ég sá kríugerið sem mætti þeim...veit ekki alveg hvort þetta sést nægilega vel
en þið verðið bara að rýna í skjáinn!

Ástþór Örn bað um myndir af flestum fossunum sem keyrt var fram hjá


Á Fróðárheiðinni


Horft niður í fjöruna rétt áður en komið er til Ólafsvíkur

Áður en við keyrðum aftur í Dal slöppuðum við aðeins af í Stykkishólmi.
Hittum ömmu Kötu á kaffihúsi, röltum um bæinn, fórum á róló og fleira!