Dalur í júlí 2005
Við erum búin að eiga tvær góðar vikur í Dal. Verið úti, hlegið okkur máttlaus, borðað góðan mat, rent fyrir laxi, spilað og fleira í sól og rigningu...aðeins meiri rigningu en ætla má í júlí þó. Hér má sjá brotabrot af stemningunni í sveitinni.
Feðgar á leið í göngutúr. Ástþór Örn féll fyrir þessari púðlutösku í Tiger áður en við fórum í sveitina!!!
Á leið í útreiðartúr í rigningunni
Við Ástþór Örn létum nægja að fá okkur göngutúr
Ástþór Örn súkkulaðikarl. Meiddi sig aðeins á fyrsta degi sveitadvalarinnar og fékk viðurnefnið Harry Potter!!
Náði þessari ótrúlega fallegu skýjamynd í safnið mitt
Ástþóri Erni fannst alltaf jafn fyndið að prófa stígvél af stærri gerðinni!!
Arnaldur og Gauti, Píla, Trýna og Brá
Gauti og Arnaldur skruppu með pabba að veiða og voru því allir skrifaðir fyrir þessum sjö og hálfs punda laxi :o)
Ég renndi fyrir laxi, án árangurs því miður. Fékk eina töku og missti svo annan eftir smá viðureign.
Ástþór Örn opnaði kaffihús á veröndinni í veiðihúsinu
Ætli hann hafi ekki fengið hugmyndina á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi en þangað fórum við nokkrum sinnum
Eitt kvöldið var vinnumönnunum Arnaldi og Gauta boðið á Narfeyrarstofu
Ástþór Örn hafði lítinn tíma til að sitja hjá okkur og var ansi erfitt að ná mynd af honum
Næstum alltaf gott veður í Stykkishólmi...
En þarna líktist þessi notalegi bær helst draugabæ
Ástþór Örn í nokkurs konar nautabanaleik!
Það var spilað Gyllitromp af kappi í sveitinni. Arnaldur náði að verða sá fyrsti sem sigrar með "röð" í Dal!!
á milli umferða var mönnum skemmt!
Hér var það Arnaldur sem skemmti nöfnunum með því að bregða sér í gervi kjúklings!!!!
Yfirvegaðri stemning yfir himneskri humarpizzu
Við vorum sammála um að pizzur ættu einfaldlega ekki að vera öðruvísi en þessi ;o)
Ástþór Örn var aldrei fjarri þegar afli veiðimannanna var mældur og vigtaður