Sveitaferð í lok sumars
Við fjölskyldan skruppum í Dal um helgina. Nú fer að líða að því að kindurnar reknar af fjalli og haustið taki við af sumrinu. Við fundum aðeins fyirr haustinu í loftinu um helgina þegar peysur og þykkari húfur voru dregnar fram!
Á laugardaginn skruppum við í Hraunsfjörðinn í berjamó. Tíndum ber, borðuðum nesti og nutum veðurblíðunnar!
Píla fékk að koma með í berjamó...enda er hún ákaflega góð í að finna staðina þar sem aðalbláberin eru...grínlaust!!
Ástþór Örn tíndi svolítið...aðallega upp úr dollunum okkar :o)
Myndavélin varð batteríslaus í miðri ferð og því ákvað brá ég á það ráð að notast við símann!
Ástþór Örn fékk sér bláberjaskyr og fékk að setja út á bláber...ansi mikið sport!
![]()
Um helgina var haldið skógræktarþing á nesinu og í tilefni sjötíu og fimm ára afmælis Skógræktarfélags Íslands
var Hofstaðarskógur gerður að svo kölluðum opnum skógi. Við drifum okkur í fögnuðinn!
Ástþór Örn leitaði að ljónum...hélt að þetta væri frumskógur svipaður þeim sem Einar Áskell hafði lent í!!!
Ástþór Örn lét veitingarnar ekki fram hjá sér fara!
Ástþór Örn varð ansi glaður þegar afi kom loksins í skóginn í einni af rútunum, sem flutti ráðstefnugestina um nesið!
Gönguferð um skóginn
Við vitum ekki alveg hvað sumir hafa haldið um þennan unga mann sem var með dúkkuna sína með sér!!!!!
Eftir ræðuhöld var harmonikkan tekin upp og sungin nokkur lög
![]()
Eftir vel heppnaða ferð í Hofstaðarskóg fórum við þrjú heim í Dal en mamma og pabbi fóru ásamt öðrum ráðstefnugestum í kvöldverð og fínerí.
Við vorum reyndar í fíneríi, með dásamlega pizzu með tígrisrækjum.
Reyndar sýnist hún akkúrat ekkert girnileg á þessari mynd! Ástþór Örn glaður!
Og vildi láta taka mynd af sér hissa líka :o)
Eftir matinn var reynt að fá Pílu og Trýnu í eitthvað grín en þær höfðu mestan áhuga á því hvort þær fengju ekki eitthvað líka.
![]()
Í gær drifum við okkur í hestaferð, hér eru Sigurður Ágúst og pabbi að undirbúa sig.
Ég á Krumma, sem er sjö vetra og nýkominn í Dal.
![]()
Við stefnum að því að drífa okkur svo aftur í sveitina þegar rekið verður af fjalli, spennt að sjá hvernig okkar kindur og lömb skila sér!