Berjamó og sveppatínsla

 

Við mæðgin skruppum vestur í berjamó. Eins og fyrri ár fórum við í Hraunsfjörðin með þó nokkra berjadalla og gott nesti.

Heilmikið var af stórum og góðum krækiberjum en bláberjaspretta var ekki eins mikil og í fyrra. En það var notalegt að fara, tína ber, borða nesti og eyða tíma í Hraunsfirðinum. Eftir að heim var komið tóku bæjarberin við, rifsberin og sólberin.

 

 

 

Ástþór Örn kíkir eftir berjum

 

 

Hraunsfjörður

 

 

Ástþór Örn kátur í berjamó

 

 

Og er hér að sýna afa sínum eina berið sem hann tíndi í ferðinni!!!

 

 

Spurði mig nokkru seinna hvernig mér litist á það að hann yrði að veiða en ég að tína ber!

 

 

 

 

 

 

 

Haförn sveimaði yfir okkur, myndin því miður ekki alveg nógu góð! Magnað að sjá hann sveima um og setjast ekki

svo langt frá okkur.

 

 

 

 

Tókum smá pásu og fengum okkur nesti

 

 

 

Búin að tína svolítið af bláberjum

 

 

 

 

 

Á leiðinni heim úr Hraunsfirðinum ókum við í gegnum Berserkjahraunið í leit að tröllskessum sem ekki höfðu náð heim fyrir dagrenningu.

 

 

 

 

 

 

 

Kominn var hugur í okkur eftir berjatínsluna og þar sem veðrið var ansi gott skruppum við í sveppatínslu.

 

 

 

Ástþór Örn festist þó nokkuð oft í "frumskóginum"

 

 

 

Þá var gott að eiga góðan afa sem nennti að bera á háhesti!

 

 

 

Fórum heim í Dal með tvær fullar körfur af sveppum. Það var ekki ónýtt að fá nýja heitreykta bleikju, kartöflur með villisveppasósu í kvöldmatinn!