Berjahelgi
Hinn yndislegi berjatími runninn upp og setti svip sinn á helgina hjá okkur! Byrjuðum "dagskrána" á góðri bláberja/jarðarberjaköku í gær og í dag suðum við svo í sultur og hlaup. Vorum með svolítið af bláberjum úr sveitinni og bættum svo rifsberjum og sólberjum við. Gerðar nokkrar tilraunir með blöndur og búið að fylla flestar krukkurnar sem til voru á heimilinu!
Svolítið af myndum, gjörið svo vel!

Sigurður naut hér síðustu frídaga sumarsins um helgina en hann fór aftur í vinnuna í morgun

Á laugardaginn hófum við berjahátíðina okkar og hér bíðum við mæðgin eftir að mega ráðast á berjakökuna

sem var voðalega góð á bragðið

Í dag skruppum við svo út og tínum rifsber og sólber

Ástþór Örn tíndi nú eitthvað en borðaði en fleiri þannig að dollan hans fylltist hægt!



Greinarnar svigna hreinlega undan berjaþunga í ár

Kominn inn með ágætis "afla"

Ég hef nú allaf síað í hlaup í gegnum grisju en núna ákváðum við að prófa auðveldu leiðina (þú verður bara að afsaka þetta mamma mín!)
og getum nú ekki séð að hlaupið yrði neitt gruggugt eða skýjað samt sem áður.

Brandarakarlarnir tveir



Við fengum góðan gest í dag, Didda bróður Sigurðar. Hann náði enni sneið af
kökunni og var sendur heim með hlaup úr rifsberjum, engifer, chili og lime.

Ástþór Örn kominn í náttföt en langaði nú ekkert í háttinn enda spenntur yfir
öllu standinu í eldhúsinu!

Ástþór Örn skreytti miðana sem við límdum á krukkurnar

Ástþór Örn var alveg viss um að sultur og hlaup væru sérlega góð fyrir hjartað og teiknaði því eitt slíkt á flesta miðana!

Örlítið brot af helgarvinnunni okkar :o)