Áramót og nýársdagur
![]()
Um áramótin vorum við í rólegheitunum í Dal. Gamlársdagur var ansi vindasamur og lítið hægt að vera úti. Borðuðum dýrindis mat, hlógum að skaupinu og höfðum það ansi notalegt. Á nýársdag komu Vigdís, Marteinn og Ólíver til okkar. Þá var borðar heimareykt hangikjöt, Svanhildur stóð fyrir flugeldasýningu og spilað var hið stórskemmtilega snæfellska spil Gyllitromp fram eftir nóttu!!
Fljótlega eftir að við komum í sveitina var að sjálfsögðu kíkt í húsin!
Folöldin sem fæddust í sumar komin inn, enda von á stórhríð
Ástþór Örn að gefa
Áður en óveðrið skall á á gamlársdag var himininn lýstur upp
Ástþór Örn fylgdist spenntur með
Við mæðgin að nýta þotufæri
Vetrarríki í sveitinni
Píla!
Ástþór Örn og Sigurður Ágúst bregða á leik með stjörnuljós!
Ástþór Örn kominn í spariftöin
Búið að dekka upp!! Knöllin geymdu ansi hnyttna brandara "a la" gömlu karlarnir í stúkunni
í The Muppet Show!!!! Og svo skutust úr þeim litlir glaðningar eins og spáspil, stækkunargler, hárkambur og fleiri nýtilegir hlutir!!!
Nafnarnir bíða eftir að mega setjast!
Ástþór Örn fór snemma í náttfötin, enda þreyttur eftir útiveru og svolítinn ærslaleik!
Gott að kúra sig hjá langömmu og lesa bók.
Fimm mínútur eftir af 2004!!
Því ekki seinna vænna en að opna kampavínið
Talið niður!!
Á nýársdag var fallegasta veður en kalt.
Frostrósir
Ástþór Örn fékk að fara einn lítinn hring með afa á snjósleðanum
Fannst eitthvað lítið varið í snjóþotuna eftir það!!
Tók nokkrar myndir í göngutúr á nýársdag
Flugeldar biðu flestir fram á nýársdag.
Á nýársdag komu Vigdís og co til okkar. Vigdís útbjó þennan glæsilega ástralska forrétt.
Mér varð hugsað til Guðrúnar Láru í fínni veislu þar sem gestgjafinn beindi þeim tilmælum til
gesta að taka mynd af matnum!! Hér var bakaður hvítmygluostur, baðaður í áströlsku hunangi með hnetum
og áströlsku púrtvíni.
Ólíver og Ástþór Örn
Brio brautin ansi vinsæl!
Við óskum ykkur öllum gleði og gæfu á nýja árinu :o)