Ágústmyndir
úr sveitinni
Hér er svolítið
af ágústmyndum, sem mér finnst varla hægt að
troða inn á síðu þeirra bræðra...enda
eru þetta hálfgerðar montmyndir úr sumaralbúminu
mínu! En má maður nú ekki aðeins monta sig á
eigin síðu?!

Stórsnillingurinn
Skuggi og Hrafn í baksýn. Skuggi er uppáhaldshestur eiginlega
allra, sama hvort
sem
þeir þora á bak eða ekki (eins og ég!). Hann er
13 vetra, ótrúlega vinnusamur og ef hann væri bíll
væri
hann einhverja svaka stóra og flotta vél, marga gíra, drif
og alls konar!
Skuggi var
því ekki í vandræðum með að ríða
út á klettabrúnir og fleira þegar við pabbi fórum
í ferð niður með ánni
að vestanverðu
til að taka myndir.

Horft niður eftir Dufgusdalnum

Ég fór nú
ekki út á brúnina til að ná myndum en smellti
bara af einni sjálfsmynd í staðinn!

Við Léttir með
Rjúkanda í baksýn

Nokkrar sólarlags-
og skýjafarsmyndir...gat ekki skorið meira niður og sýni
því fleiri en færri!






Í ágústbyrjun
áttum við pabbi stöng í holli í ánni.
Hér er pabbi við Rjúkanda

Píla
sat og "fylgdist" með veiðinni á meðan hún
dormaði...og lét sig kannski bara dreyma um harðfisk eða
græna
lautu og sólargeisla!

Eða kannski bara notalega
stund við Grænabakka!!

Í Sjávarfossi
með lax á...en hann hafði betur á lokasprettinum eftir
stórskemmtilega viðureign

Píla ótrúlega
spennt yfir sjóbirtingi á leið á land

Náði svo öðrum
sjóbirtingi en laxinn leit ekki við flugunni frekar

Í sumar
tíndi ég svolítið af jurtum í te. Fyrr í
sumar tíndi ég blóðberg og birki og örlítið
seinna vallhumal og ljónslappa.
Í byrjun
ágúst var svo mjaðjurtin klár til tínslu. Þetta
er svo allt þurrkað og klárt í haustteið (efast
um að mér endist það
langt fram
á vetur og stefni að því að tína mun meira
næsta sumar).

Það verður nú
að vera ein maríuerlumynd með. Mér fannst þessi
svo óskaplega sæt þar sem hún "brosti"
í myndavélina
xxx
Og talandi
um myndasvip! Þetta er hann Frakkur. Hann er 11 vetra og alveg óskaplega
skemmtilegur hestur. Þið trúið því kannski
ekki en hann hefur
ótrúlegan
húmor og einstaka lund. Góður reiðhestur og fallegur.
Ástþór Örn er ákaflega stoltur eigandi Frakks.

Svo kann hann líka
að passa börn!! Honum leist ekkert á þetta klifur í
Arnaldi Kára og hreinlega stoppaði hann í að fara lengra.

Dalur og Elliðatindar
í sól og sumaryl

Og þessa tók
Ástþór Örn af mér...bara nokkuð sumarleg
og fín


Ég tíndi nokkrar
engjarósir og fleiri blóm saman í smá vönd
og inn læddist þessi lirfa sem fékk að vera í
friði

Og morguninn eftir hafði
hún breyst svolítið! Tekið í sig rauðan lit
engjarósarinnar

Reyniberin gáfu til
kynna að sumri væri farið að halla

Eitt fallegt ágústkvöld
fóru í gegn hjá okkur mikið hestastóð
og þó nokkrir knapar sem voru á þriðja degi
sjö daga hestaferðar
Ég rölti
út og fylgdist með stóðinu og rölti svo við og
heilsaði upp á hana Hnotu sem var nýkomin heim úr tamningu.
Frakk var ekkert meira en
svo vel við
athyglina sem hún fékk og lét vita vel af sér líka
til að athuga hvort að það væri nokkuð verið
að gleyma honum og kannski bera
það
undir mig að það væri gaman að fara í nokkra
daga hestaferð einn góðan veðurdag!
Og hér
er ég komin á bak Hnotu. Hryssuna fékk ég í
þrítugsafmælisgjöf frá foreldrum mínum.
Hún
hefur nú alveg hrist af sér viðurnefnið Grimmhildur þó
að hún sé alls ekki skaplaus sem betur fer!
Hún
fór fyrir tveimur árum í frumtamningu hjá henni
Söru hálfsystur minni sem vissi ekki alveg hverju hún
átti
að eiga von á í ljósi viðurnefnisins! En þar
gekk henni ljómandi vel og lærð margt. Í fyrrasumar
og í sumar var hún svo í þjálfun hjá
strák sem býr á nesinu
og gekk mjög
vel. Og hér erum við svo komnar saman af stað. Hún Hnota
er undan Elfu sem pabbi átti (Dufgus er einnig undan henni) og honum
Kapli sem
er hvíti
fallegi gæðingurinn utan á hestabókinni stóru
til dæmis...en hann er mikil fyrirsæta og hefur verið á
allt frá bolum til konfektkassa!! Með tímanum má
gera ráð
fyrir að Hnota verði enn ljósari en hún fæddist
brúnskjótt.
Pabbi tók
þessa mynd af Arnari sem sýndi það sem hún hafði
lært þegar hann kom með hana heim aftur...
ég þyrfti
að fá svona fína mynd af mér líka!