27. apríl 2008

Átti rólegan og góðan afmælisdag. Takk fyrir kveðjurnar :o)

Dagurinn byrjaði snemma, þegar ég var vakin klukkan sjö af Ástþóri Erni sem óskaði mér til hamingju með afmælið. Hann held ég spenntari en ég fyrir deginum, enda mikill afmælismaður, tók ekkert sérlega vel í það að ég færi eitthvað að sofa út. Ég dormaði þó örlítið lengur! Í nýjum afmælisfötum frá mömmu og pabba byrjaði ég daginn í notalegu afmælismorgunkaffi með körlunum mínum og opnaði nokkra pakka. Óskaplega huggulegt. Ég held að það er fátt skemmtilegra en að eiga afmæli. Og hér koma nokkrar myndir.

 

 

 

Daginn fyrir afmælið þegar ég var að dunda mér eitthvað hér frammi heyrði ég samtal á milli Sigurðar og Ástþórs Arnar, sem var að fara að

teikna afmæliskort handa mér. Ástþór Örn vildi teikna jólasvein en Sigurður vildi nú meina að þeir ættu frekar heima á jólakortum!

Ástþór Örn var nú ekkert á því neitt í fyrstu, enda óþarfi að halda sig við reglurnar í einu og öllu. En í staðinn fyrir jólasvein

ákvað hann að teikna söngvasvein á afmæliskortið mitt. Hér er því eþssi fallegi og lagvissi söngvasveinn sem baðar sig

í vorsólinni! Lesningin í kortinu var svo dásamleg að ég var næstum farin að grenja...enda meyr með eindæmum:

 

Elsku mamma. Hjartans til hamingju, ég óska þér hamingju úr mínu hjarta. Þinn vinur, Ástþór Örn og líka Arnaldur Kári

 

...finnst ykkur þetta ekki fallegt?

 

 

 

Ég í afmælisfötunum mínum með yndislega fallegt hálsmen sem Guðrún Lára gaf mér,

lítill gylltur fugl sem situr á svartri perlu. Mér duttu orð Ástþórs Arnar í hug þegar ég tók það upp:

"þetta var einmitt eins og ég óskaði mér". Og taskan er einmitt líka frá Guðrúnu Láru og ætluð

undir prjónadót...ég þarf vart að taka fram að hún saumaði hana handa mér! Og ekki má gleyma

yndislega mjúkum og fallegum náttkjól sem hún elsku besta vinkona mín færði mér.

 

 

 

Þessir sætur karlar og hann Ástþór Örn gáfu mér margt fallegt og sáu til þess að ég get hætt að kvarta

undan kekkjóttum kodda þegar ég fer að sofa, lesið hestabók og því orðið fróðari um

vini mína í sveitnni, verið sætari með alls konar "bling", ilmað eins og kirsuberjatré og dansað tangó

við réttu tónlistina!

 

 

 

Ástþór Örn valdi svo handa mér armbönd og hálsmen alveg sjálfur,

enda hefur hann orðið ansi sterkar skoðanir á því hvað hann langar

að gefa vinum og ættingjum í afmælisgjafir.

Armböndin fara svo vel með hálsmeninu frá Guðrúnu Láru að það

hefði mátt halda að þau hefðu talað sig saman um hvað þau ætluðu að gefa mér

 

 

 

Litli kúturinn sem á næstur afmæli hér þessu heimili!

 

 

 

 

Amma Kata og afi Ástþór litu inn í smá kaffi og seinna um daginn kom Davíð frændi til okkar beint frá Þýskalandi

 

 

 

Sigurður tekur þátt í afmælissöng

 

 

 

Ansi lengi hef ég ætlað að ná mynd af þessum fjórum saman, tókst í gær

 

 

Þeir nafnarnir ansi glaðir að hittast eftir afaútlegðina

 

 

 

Og ein af okkur í lokin. Fínasti afmælisdagur að kvöldi kominn

 

 

 

 

Í dag er það svo bara annar í afmæli og svo þriðji í afmæli í bland við ritgerðalestur og vinnu. Hafið það öll voða gott og njótið vorblíðunnar.