Sunnudagurinn 20. júlí
Í dag drifum við frænkur okkur með Ástþór Örn í Eskemoseskov við Sjællsø. Mjög gaman þar eins og venjulega.
Svo var Sigurður drifinn með á ísbarinn!
Þar sem ég held ég hafi aldrei séð svona stóran snigil...nema þá helst á matardiski þá mátti ég til með að taka mynd!!
Vigdís að byrja Sjællsøhringinn
Við frænkurnar. Það er komin hefði fyrir því að við tökum svona mynd. Eigum nokkrar aðrar úr öðrum ferðum!
Og við Jægerhytten. Það er einfaldlega bara ýkt kósí að sitja þarna og fá sér hressingu.
Og komin á ísbarinn!