Kennsla og kennsluhættir

Í dag ganga flestir grunnskólar landsinis undir orðunum, Skóli fyrir alla, einstaklingsmiðað nám. Í dag þarf  kennarinn að vera vel upplýstur um alla þá sem eru öðruvísi ef það mætti orðað það þannig. Kennarinn þarf að vita hvað er á bak við t.d. ofvirkni, eða ofvirkni með athyglisbrest?, hvað gerir maður fyrir nemanda sem er einhverfur eða með lesblindu. Hér væri hægt að halda áfram að telja. Og svo má ekki gleyma einstaklingsmiðuðu námi. Það kallar á gott skipulag.

Hvað er góð kennsla í mínum huga?
Fyrir utan það sem ég skrifaði hér að ofan hlýtur góð þekking á því sem maður kennir að skipta sköpum. Það fær engin nemandi góða kennslu í íslensku ef kennarinn talar og skrifar móðurmálið vitlaust. Eða stærðfræði? Ég kenni 7.bekk og tók það skýrt fram þegar ég ákvað að taka þetta stóra starf að mér, að stærðfræði myndi ég ekki kenna. Einfaldlega vegna þess að ég er ekki góð í henni. Og ég fann það þegar ég hljóp í forfallakennslu í því fagi hjá mínum bekk að þarna var ég ekki í mínu sterka fagi. Og ég var ekkert að fela það fyrir nemendunum mínu. Þvert á móti. Ég brosti bara sætt og bað nemandann að útskýra aðeins fyrir mér regluna og reyndi svo að klóra mér áfram með aðstoð hans. Eftir tímann lét ég minn yfirmann vita að betra væri ef einhver annar hlypi í skarðið fyrir stærðfræðikennarann heldur en ég.
Góð kennsla er kennari sem hefur áhuga á starfi sínu, fagi sínu og öllum þeim nemendum sem eru í tímum hjá honum. Að hann gefi sig fram við þau öll.

Hvað merkir fyrir mér að kenna vel?
Að bera virðingu fyrir sjálfum sér er eina leiðin til að aðrir beri virðingu fyrir þér. Að miðla efni og koma því frá sér á sem eftirtektarverðastan hátt. Ég kenni vel að mínu mati, ef ég hef undirbúið kennslustundina vel fyrirfram. Mér finnst gaman að brosa og hlæja með kennslunni, á það til að gleyma mér í leikrænni tjáningunni en ég sé að þeim finnst það gaman og ég brýt oft ísinn með einhverju broslegu eftir að hafa sagt eitthvað þungt, erfitt eða leiðinlegt í þeirra eyrum. Ég passa mig líka á að loka munninum og leyfa þeim að tjá sig. Oft finnst mér að ef ég er að kenna þeim reglu og einhver nemandinn spyr þá taka hinir meira eftir.

Hvað merkir fyrir mér að kenna mína grein vel?
Ef ég ber virðingu fyrir faggrein minni og sjálfri mér sem kennari þá skila ég góðri kennslu. Það er afar mikilvægt að vekja áhuga nemenda á efninu sem fyrst og er það í raun grundvöllur kennslunnar og eitt mikilvægasta atriðið.