Hver eru viðhorf mín til nemenda?
Mér dettur strax jákvæðni í hug. Mér finnst það skipta máli, að vera opin og glaðleg og tilbúin til að aðstoða þá. Ég tel að viðhorfin séu breytileg eftir skólastigum. Á grunnskólastiginu eru nemendur í skyldunámi, ekkert val til að sleppa. Ég hef ekki kennt á framhaldsskólastigi þó ég stefni á það en er að kenna 7. bekk núna. Ef ég lít yfir bekkinn minn og nemendur mína þá eru viðhorf mín misjöfn. Ég er með mjög duglega og jákvæða og ég nýt mín að gefa þeim jákvæða styrkingu. Svo er ég líka með þá sem „nenna“ þessu ekki og ég hef reynt margt til að breyta þeirra viðhorfi og er búin að ná til flestra.
En ef mikil neikvæðni er í andrúmsloftinu inní skólastofu minni þá verð ég neikvæð og viðhorf mitt breytist til þeirra allra. Það finnst mér slæmt og reyna frekar að koma með eitthvað t.d. innlögn og þá skemmtilega. Ég er kröfuhörð og vil að nemendur skilji mig, skilji það sem ég kenni þeim og ef ekki þá leiti til mín. Ég ætlast til að þau beri virðingu fyrir mér sem kennarinn þeirra og að þau séu metnaðarfull og hafi vilja til að læra og öðlast þekkingu í því fagi sem þau eru að taka sér fyrir hendur.
Hvernig augum lít ég þá?
Jákvætt auglit er styrking og ég lít aldrei á nemendur mína með fyrirlitningu einsog ég hef séð. Það tel ég vera slæmt því ég er fyrirmynd þeirra og vil alls ekki að þau líti á einhvern öðruvísi en með virðingu og jákvæðni.
Hvernig hugsa ég um fólk sem námsmenn?
Við erum öll svo ólík og námsmenn auðvitað líka. Það eru til þeir sem nenna og vilja og hafa mikin metnað en svo aðrir sem eru í skóla vegna skyldu eða þrýsting að heiman.
Ég hef ætíð litið upp til fólks sem er duglegt og með mikin metnað til að læra. Fólk sem ákveður að fara í nám eftir langan tíma eru hetjur í mínum augum. Ég stefni að því að kenna við Iðnskólann og því mun ég ekki einungis kenna ungu fólki heldur líka hetjunum sem hafa ákveðið að fara aftur í nám.
Þegar ég fer að kenna í framhaldsskóla mun ég styðja nemendur og einnig vísa þeim á annað svið ef þau eru kannski ekki á réttum stað. T.d. krefst mikilla tölvukunnáttu í mínu fagi og ef nemandi er ekki góður á því sviði og ekki áhugasamur en samt með teikningu og myndlist myndi ég vísa honum í annað listnám.
Hvað merkir í mínum huga að læra eitthvað vel, til dæmis hluti sem tengjast mínu fagi?
Að læra eitthvað vel kallar á þekkingu og þann metnað að finna allt sem tengist faginu. Sækja námskeið og lesa sig til.
Ef manni langar að læra sitt fag vel eða það sem maður tekur sér fyrir hendur gengur það betur ef maður er jákvæður og fullur af sjálfstrausti. Og svo auðvitað öfugt, maður fyllist af jákvæðni og sjálfstrausti ef manni gengur vel að læra og skilja hlutina.
Þegar kemur á vinnumarkað og maður skilar af sér verki sem maður hefur unnið eða gengur vel að kenna nemendum sínum þá líður manni vel og gefur manni svo mikið til baka.
|