Hver er afstaða mín til greinarinnar sem ég kenni?
Þegar ég byrjaði í námi mínu, prentsmíð, sem þekkist víst betur í dag undir nafninu grafísk miðlun, þurfti ég ætíð að útskýra betur greinina. Það vill stundum verða þannig að prentsmiður og grafískur hönnuður sé sambærilegt fag. Í raun er mikill munur og oft hefur verið smá stríð á milli okkara. Ég var ekki ánægð með að sjá endalausar atvinnuauglýsingar í blöðunum þar sem að óskað var eftir „grafískum hönnuði“ sem gæti gert þetta og þetta og hitt og hitt en það var nákvæmlega það sem að ég kunni en þeir vildu engan „prentsmið“ heldur „grafískan hönnuð“. Ég held að það séu líka fleiri sem titla sig því fagnafni bara vegna góðra kunnáttu í Photoshop. Mér fannst þetta ekki vera nógu gott og sem betur fer er þetta allt að breytast. Auglýsingastofur eru farnar að sjá og finna að þeir verða að vera með prentsmiði í vinnu hjá sér því grafíski hönnuðurinn er of upptekin við „að hanna funky útlit“ sem prentsmiðurinn þarf svo að koma í rétt form svo hægt sé að prenta gripinn sem hönnðurinn skapaði. Einnig fannst mér líka mjög gaman að segja að ég væri setjari þegar gamla fólkið var að velta því fyrir sér hvað prentsmiður væri. Og setjarar voru nokk merkilegir hér í gamla daga, og eru enn. Þeir hafa bara fengið nýtt nafn.
Hvers vegna valdi ég þetta fag?
Fjórum árum eftir að ég kláraði almennt skrifstofunám í Viðskipta og tölvuskólanum langaði mig aftur í nám. Ég vann þá sem móttökumær og hafði umsjón með öllum auglýsingum sem gerðar voru í fyrirtækinu. Ég kynntist umbrotsforriti og fann út hvaða nám það væri í boði tengt því. Iðnskólinn í Reykjavík stóð fyrir námi í prentsmíð og ég fór og kynnti mér það. Reyndar var ég dáldið smeyk við stærðfræðiánfangana sem ég þurfti að taka en mér hafði gengið mjög illa í henni. Því ákvað ég að reyna enn og aftur við stærðfræði 102 hjá Námsflokkunum og ef ég myndi ná honum væru allir vegir færir.
Áhuginn var mikill við að læra þetta fag og ég var mjög spennt.
Er það mikilvægt sem kennslugrein?
Einsog staðan er í dag þá tel ég líklegast vera. Endalaust erum við að fá inn um lúguna okkar gríðarlegt magn af „ruslpósti“ og auglýsingabréfum. Þeir sem standa á bak við pappírsflóðið eru auglýsendurnir og þeir kaupa þessa þjónustu hjá auglýsingastofum sem klára dæmið hjá prentsmiðjunum. Og þar eru prentarar og prentsmiðir sem klára málið. Ef þeir væru ekki til staðar væri sjálfsagt minna af „ruslpóstinum“ eða hann væri ekki eins áberandi hvað varðar gæði og útlit.
Hvers vegna?
Á bak við Morgunblaðsins og Fréttablaðsins eru duglegir og klárir prentsmiðir. Fólk gengur ekki í þessi störf nema hafa menntunina og mér finnst það mjög gott að vita af því. Að helstu og elstu prentsmiðjur halda í fagmennina og réttindin. Auðvitað laumast inná milli duglegir starfsmenn sem „hafa þetta í sér“ og ef þeim líkar vel drífa þeir sig í að ná sér í réttindin.
Til hvers kenni ég þessa grein?
Faggrein mín er ætíð að breytast. Hún er tölvutengd og þróunin mjög ör. Í dag vinna að meðaltali þrír til fjórir í umbrotsdeildum prentsmiðja en fyrir um 10 árum síðar voru starfsmenn um tuttugu. Ég held að breytingar í faginu kalla á ferska kennara sem hafa mikin áhuga og eru duglegir að sækja endurmenntunarnámskeið. Þegar ég byrjaði í náminu var ég ekki alveg nógu sátt við þá sem kenndu, fannst þeir vera fastir í fortíðinni og kenna of lítið á nútímatækni. Mér finnst líka mjög gaman að koma því á framfæri minni færni og þekkingu til þeirra sem vilja læra faggreinina.
Að hverju stefni ég?
Að verða metnaðarfullur, góður og krefjandi kennari. Að geta miðlað minni reynslu og þekkingu til þeirra sem hafa áhuga á að læra. Mig langar líka að geta kveikt á þeim sem eru í náminu en þó ekki viss hvort það sé sú rétta grein sem nemandi hefur valið sér, vera góður leiðbeinandi.
Hvað segir námskráin um greinina?
Hún hefur breyst frá því að ég var í náminu til hins betra en ekki samt til 100% góðs að mínu mati. Meðalnámstími eru 3 ár og þá er talið með grunnnámið. Svo eru 48 vikna starfsþjálfun sem er tekin í lokin.
Er ég sammála áherslum námskrár?
Mér finnst að starfsþjálfunin eigi að koma inní mitt nám, einsog það var. Mér líst nokkuð vel á að hafa grunnnám fyrir allar greinarnar, prentsmíð, bókband, prentun, vefsmíð, ljósmyndun og fleiri fög eru í boði að loknu grunnnámi. En ég hef ekki kennt við Iðnskólann, ekki kennt við þessa nýju námskrá svo það verður að reyna á það áður en ég verð algjörlega sammála henni.
|