Verkefnin

Kennslusvæði greinasviða inniheldur æfingakennsluna, þ.e.a.s. við þurfum að finna skólann og æfingakennara sem leiðbeinir okkur og heldur þessi áfangi utan um það. Í lok hans eigum við að skila ritgerð undir nafninu Ég sem kennari og til að flýta fyrir henni urðum við að skila 4 verkefnum sem við notum svo í þessa ritgerð. Mér finnst þetta mjög gott plan, alltaf erfitt að gera ritgerð á síðustu stundu. Hér set ég inn þau verkefni en svo er ritgerðin í sinni heild undir starfskenning mín.